Búnaðarþingsmálið svokallaða er án efa helsta umræðuefni landsmanna þessa stundina. Málið varðar meint ummæli Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra um Vigdísi Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtakana, á gleðskap í tengslum við Búnaðarþing. Vigdís hefur nú sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún fullyrðir að Sigurður Ingi hafi viðhaft særandi ummæli á gleðskapnum en Sigurður Ingi á að hafa vísað til Vigdísar sem „hinnar svörtu“ samkvæmt heimildum DV.
Ingveldur Sæmundsdóttir, aðstoðarmaður Sigurðar Inga, steig fram í gærkvöldi og sagði að um algjört bull væri að ræða því að hún hafi verið við hlið Sigurðar Inga þegar atvikið átti að eiga sér stað. Vigdís vísar í þau viðbrögð í yfirlýsingu sinni og segir að aðstoðarmaður ráðherrans hafi ekki verið við hlið hans þegar ummælin féllu og að það sé særandi að reynt sé að gera lítið úr hennar upplifun.
Vigdís birti yfirlýsingu sína vegna málsins á Facebook-síðu sinni en stuðningsyfirlýsingum hefur rignt yfir hana í athugasemdunum við færsluna. Nokkrir þingmenn eru á meðal þeirra sem skrifa athugasemdir við færsluna. Helga Vala Helgadóttir, þingkona Samfylkingarinnar, þakkar Vigdísi til að mynda fyrir að stíga fram.
„Það skiptir máli að öflug kona eins og þú svo sannarlega ert lúffir ekki fyrir gaslýsingu eins og þeirri sem borið hefur á. Það er mjög mikilvægt og hafðu þakkir fyrir,“ segir hún.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa einnig sýnt Vigdísi stuðning. „Þú ert hetja,“ segir Ásmundur Friðriksson og Diljá Mist Einarsdóttir sendir henni tvö hjörtu. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingkona Vinstri grænna, sendir Vigdísi svo hlýjar kveðjur.
Guðfinnur Sigurvinsson, stjórnsýslufræðingur og aðstoðarmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, segir Vigdísi eiga miklu betra skilið en „yfirklór“ og „lygaþvælu“. Guðfinnur og Vigdís þekkjast vel enda störfuðu þau samtímis fyrir þingflokk Sjálfstæðisflokksins áður en Vigdís tók við sem framkvæmdastjóri Bændasamtakanna.
„Ég er stoltur vinur þinn, nú sem fyrr, og veit bæði í huga og hjarta að það sem þú segir er sannleikanum samkvæmt. Þú ert bara þannig, vönduð og heilsteypt alla leið alltaf,“ segir Guðfinnur í athugasemd sinni.
Málið hefur einnig vakið töluverða athygli á samfélagsmiðlinum Twitter og ljóst að pólitískir andstæðingar Framsóknar sjá þar gullið tækifæri. Meðal annars sá möguleiki viðraður hvort Sigurður Ingi muni segja af sér vegna þessara ummæla. Bent er á að í öðrum löndum væri það gert tafarlaust en sá vani hefur ekki tíðkast hér á landi að ráðherrar segi af sér þegar svona skandalar koma upp.
Í flestum tiltölulega siðlegum lýðræðisríkjum þurfa menn að segja af sér eftir svona.https://t.co/WSCf2XAom5
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) April 4, 2022
Erlendis væri formaður Framsóknar hættur í störfum eftir þessi ummæli pic.twitter.com/C6Qv3O8Uy7
— Sigurður Ingi Ricardo (@Ziggi92) April 4, 2022
Þá hafa nokkur birt færslur sem vísa í kosningaslagorð Framsóknar frá síðustu kosningum: Er ekki bara best að kjósa framsókn?
Er kannski bara alltaf verst að kjósa Framsókn?
— Gústi Chef (@gustichef) April 4, 2022
Er ekki bara best að knúsa Framsókn?
— Örn Úlfar Sævarsson 🇺🇦 (@ornulfar) April 4, 2022
Er ekki bara best að koma Framsókn frá völdum?
— Sigurborg Ósk Haraldsdóttir (@SigurborgOsk) April 4, 2022
Verður áhugavert að sjá damage control framsóknarmanna seinna í dag. Hræddur um að það virki ekki lengur að kjósa bara framsókn. https://t.co/B7n74gKzKy
— Teitur Örlygsson (@teitur11) April 4, 2022
Valur Grettisson, ritstjóri Grapevine, segir svo að líklega sé um að ræða sorglegasta pólitíska skandalinn síðan árið 2018, þegar Klaustursmálið kom upp.
Úff, svo er varla hægt að taka yfirvofandi afsökunarbeiðni SIJ alvarlega því aðstoðarmaðurinn er búinn ljúga blákalt um málið að auki. Líklega sorglegasti pólitíski skandall síðan Klaustursmálið var og hét.https://t.co/uyUS8LPX1U
— Valur Grettisson (@valurgr) April 4, 2022
Einnig hefur því verið velt upp að nú sé „gamla Framsókn“ komin aftur. „Framsókn er og verður alltaf bara Framsókn,“ segir til að mynda Hrafn Jónsson, kvikmyndagerðarmaður og pistlahöfundur.
Öll þessi ímyndarvinna til að gera Framsóknarflokkinn einhverskonar vinalegan frænda sem er með smá rautt nef, en samt bara hress og meinlaus. En Framsókn er og verður alltaf bara Framsókn.
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) April 4, 2022
Natan Kolbeinsson, ritari stjórnar Uppreisnar – Ungliðahreyfingar Viðreisnar, tekur svo í svipaða strengi og Hrafn.
Jæja þetta var gott korter rétt í kringum kosningar sem við fengum nýja feel good framsókn áður en gamla framsókn kom aftur.
— Натан 🇺🇦 (@NatanKol) April 4, 2022