fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Senda frá sér yfirlýsingu vegna frétta af Einari og vændiskaupunum – „Nöturleg valdamisnotkun“

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 25. janúar 2022 15:13

Til vinstri: Kristín I. Pálsdóttir - Til hægri: Einar Hermannsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rótin, félag um velferð og lífsgæði kvenna, hefur gefið út yfirlýsingu vegna viðtals Stundarinnar við skjólstæðing SÁÁ sem birt var í morgun. Í viðtalinu segir skjólstæðingurinn frá því hvernig hún leiddist út í vændi auk þess sem hún fullyrðir að Einar Hermannsson, fráfarandi formaður SÁÁ, hafi keypt þjónustu af henni.

„Rótin harmar þann skaða sem skjólstæðingur SÁÁ hefur lýst að Einar Hermannsson hafið valdið henni. Einar hefur setið í stjórn SÁÁ frá því árið 2015 og var því í stjórninni þegar brotin sem lýst er í Stundinni áttu sér stað, á árunum 2016–2018,“ segir í yfirlýsingunni frá Rótinni sem skrifuð er af Kristínu I. Pálsdóttur, framkvæmdastjóra og talskonu félagsins.

Kristín segir að um sé að ræða nöturlega valdamisnotkun af hálfu Einars. Hún bendir á að SÁÁ séu frjáls félagasamtök sem stjórnvöld hafa í rúm 40 ár treyst til að sjá um meginþorra heilbrigðisþjónustu fyrir fólk með vímuefnavanda.

„Í þeim hópi er margt af jaðarsettasta fólki landsins og í ljósi þess valds sem stjórnvöld hafa fært SÁÁ í málaflokknum er um fádæma siðleysi að ræða sem sannarlega hefur haft áhrif á störf Einars sem formanns, þrátt fyrir yfirlýsingu hans um hið gagnstæða. Í fáum störfum hefur siðferðiskennd meira gildi en í störfum fyrir fólk með vímuefnavanda og jaðarsett fólk.“

Kristín segir að stjórnvöld hljóti að gera þær kröfur hjá félagasamtökum líkt og SÁÁ að hvorki ríki ógnarstjórn né annað ofbeldi innan samtakanna. Þá segir hún að einnig hljóti að vera gerðar þær kröfur að faglegir ferlar séu til staðar til að taka á slíkum málum.

Hún segir að árið 2017 hafi Rótin spurt stjórnendur SÁÁ um verkferla samtakanna varðandi kynferðislega áreitni og ofbeldi en að því hafi verið svarað að þeirra væri ekki þörf.

Í lok yfirlýsingannar segir Kristín að ráð Rótarinnar sendi kærleikskveðjur til þolanda Einars. „Við trúum þér og stöndum með þér.

Hér fyrir neðan má lesa yfirlýsinguna í heild sinni:

Rótin harmar þann skaða sem skjólstæðingur SÁÁ hefur lýst að Einar Hermannsson hafið valdið henni. Einar hefur setið í stjórn SÁÁ frá því árið 2015 og var því í stjórninni þegar brotin sem lýst er í Stundinni áttu sér stað, á árunum 2016–2018.

Brot Einars gegn konunni er nöturleg valdamisnotkun stjórnarmanns í frjálsum félagasamtökum sem stjórnvöld hafa í rúm 40 ár treyst til að sjá um meginþorra heilbrigðisþjónustu fyrir fólk með vímuefnavanda. Í þeim hópi er margt af jaðarsettasta fólki landsins og í ljósi þess valds sem stjórnvöld hafa fært SÁÁ í málaflokknum er um fádæma siðleysi að ræða sem sannarlega hefur haft áhrif á störf Einars sem formanns, þrátt fyrir yfirlýsingu hans um hið gagnstæða. Í fáum störfum hefur siðferðiskennd meira gildi en í störfum fyrir fólk með vímuefnavanda og jaðarsett fólk.

Þó að það sé ekki hlutverk stjórnvalda að skipta sér af stjórnun frjálsra félagasamtaka, hljótum við að gera þær kröfur að hjá þeim aðilum sem veita heilbrigðisþjónustu fyrir ríki og sveitarfélög ríki hvorki ógnarstjórn[1] né annað ofbeldi og að faglegir ferlar séu til staðar til að taka á slíkum málum. Árið 2017 spurði Rótin stjórnendur SÁÁ um verkferla samtakanna varðandi kynferðislega áreitni og ofbeldi og var því svarað að þeirra væri ekki þörf.[2]

Það eru mikil vonbrigði að Embætti landlæknis hafi haft vitneskju um brotið í tvö ár án þess að aðhafast.Rótin var stofnuð fyrir tæpum 9 árum til að vinna að málum kvenna með vímuefnavanda. Áður höfðu stofnendur félagsins gert tilraun til að vinna að útbótum í stefnu og meðferð kvenna innan SÁÁ, en fljótlega varð ljóst að þar væri lítill áhugi á þeirri áfalla- og kynjamiðuðu nálgun sem nauðsynleg er í meðferðarstarfi.[3] Rótin var stofnuð til að vinna þessum málum framgang en SÁÁ tekið illa í hugmyndir félagsins, gert lítið úr þeim og beitt þöggunartilburðum.

Öryggi er lykilorð í vímuefnameðferð og í meðferð fólks með erfiða áfallasögu. Því miður hefur þetta öryggi ekki verið skapað í meðferðarkerfinu, eins og kom glöggt fram í rannsókn Rótarinnar og RIKK á reynslu kvenna af meðferð.[4] Síðustu ár hefur Rótin ítrekað vakið athygli á vöntun á öryggi kvenna í meðferð og bent á þann vanda að láta meðferð fólks, sem oft á við fjölþættan og flókinn vanda að etja, vera að mestu í höndum áfengis- og vímuefnaráðgjafa. Stjórnvöld hafa viðurkennt að menntun þeirra sé ekki í samræmi við önnur störf í heilbrigðiskerfinu en hefur ekki gripið til aðgerða til að bæta úr því.

#MeToo-byltingin snýst um að breyta samfélaginu til hins betra, að hafna kerfum sem byggjast á misnotkun valds. Sá hörmulegi atburður að formaður samtaka, sem stjórnvöld hafa gefið vald yfir fólki með vímuefnavanda, er ekki óheppileg tilviljun heldur hlekkur í langri keðju. Þessi keðja rofnar ekki nema farið sé í markvissar aðgerðir til að uppræta ofbeldismenninguna.

Fólki í 12 spora samtökum er tamt að nota orðalagið að það að vera edrú og allsgáður sé „framkvæmdaprógramm“. Hið sama á við um jafnrétti.

Ráð Rótarinnar sendir kærleikskveðjur til þolanda Einars. Við trúum þér og stöndum með þér.

Bestu kveðjur f.h. ráðs Rótarinnar,

Kristín I. Pálsdóttir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Manndráp í Kiðjabergi – Mennirnir voru að byggja sumarbústað

Manndráp í Kiðjabergi – Mennirnir voru að byggja sumarbústað
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Fjallar um fordóma gegn Baldri – „Hafa litlu mennirnir fengið háværari rödd?“

Fjallar um fordóma gegn Baldri – „Hafa litlu mennirnir fengið háværari rödd?“
Fréttir
Í gær

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer
Fréttir
Í gær

Sundlaugargestir æfir yfir fyrirhuguðum breytingum: „Notið peningana í þarfari hluti“

Sundlaugargestir æfir yfir fyrirhuguðum breytingum: „Notið peningana í þarfari hluti“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Siggi hakkari fluttur til Danmerkur og veitti Ekstrabladet viðtal – Mikið gert úr njósnum en lítið úr kynferðisbrotunum

Siggi hakkari fluttur til Danmerkur og veitti Ekstrabladet viðtal – Mikið gert úr njósnum en lítið úr kynferðisbrotunum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögmaður fór dagavillt og því þarf að byrja allt málið upp á nýtt

Lögmaður fór dagavillt og því þarf að byrja allt málið upp á nýtt