fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Fréttir

Ástarsvindlarar hafa svikið tugi milljóna út úr hrekklausum Íslendingum

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 10. september 2021 08:00

Fjöldi Íslendinga hefur verið féflettur af svokölluðum ástarsvikurum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frá því að heimsfaraldur kórónuveirunnar skall á hefur svokallað ástarsvindl aukist mjög hér á landi ef miða má við fjölda tilkynninga og samtöl við fórnarlömb. Á þremur árum hafa 20 tilkynningar um ástarsvindl borist til lögreglunnar og var samtals um 73 milljónir að ræða sem voru sviknar út úr fólki, eða 3,65 milljónir að meðaltali í hverju máli.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Með ástarsvindli er átt við þegar svikahrappur, sem er yfirleitt staddur erlendis, kemst í samband við væntanlegt fórnarlamb sitt á netinu, oft í gegnum stefnumótasíður eða spjallsíður. Út frá þessu myndast tilfinningasamband á fölskum forsendum. Þegar svikahrappurinn telur sig vera búinn að byggja upp nægilega mikil tengsl og traust biður hann um lán eða styrk. Þetta getur síðan haldið áfram um langa hríð og upphæðin farið síhækkandi.

Fréttablaðið hefur eftir Daða Gunnarssyni, lögreglufulltrúa hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, að málum af þessu tagi hafi fjölgað í faraldrinum. 14 af tilkynningunum 20 hafi borist eftir að faraldurinn skall á. „Það staðfestir aukningu frá því að Covid hófst. Þá er líka fólk sem hefur verið í sambandi við okkur eftir að Covid hófst sem lét ekki blekkjast en var komið áleiðis og búið að mynda nokkur tilfinningabönd við aðilana,“ er haft eftir honum.

Hann sagði einnig að þrátt fyrir að tilkynningum hafi fjölgað þá telji lögreglan að það segi ekki allt um umfangið því margir skammist sín einfaldlega of mikið til að tilkynna um brot af þessu tagi. „Skömmin er töluverð hjá fólki sem ræðir við okkur. Fólk er oft mjög sárt þar sem það var búið að mynda tilfinningatengsl við aðilann sem það var í sambandi við,“ sagði hann.

Það er misjafnt hvað lögreglan getur gert í málum af þessu tagi en peningarnir eru ekki alltaf tapaðir. „Í sumum málum höfum við náð peningum aftur ef fólk uppgötvar þetta fljótt. Vandamálið er að yfirleitt uppgötvast þetta mjög seint og fólk vill ekki viðurkenna að hafa orðið fyrir slíkum brotum. Þá eru endurheimtur oftast frekar erfiðar,“ sagði Daði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Húsleitir og handtökur vegna skipulagðrar glæpastarfsemi

Húsleitir og handtökur vegna skipulagðrar glæpastarfsemi
Fréttir
Í gær

Áráttufullur perri í Reykjavík olli konum skelfingu – „Chupa Chupa“

Áráttufullur perri í Reykjavík olli konum skelfingu – „Chupa Chupa“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Edition-hótelinu – Gæsluvarðhald framlengt um fjórar vikur

Harmleikurinn á Edition-hótelinu – Gæsluvarðhald framlengt um fjórar vikur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn mælir með snjóboltaaðferðinni þegar kemur að skuldum heimilisins – „Hefur reynst vel til þess fallin að halda fólki við efnið“

Björn mælir með snjóboltaaðferðinni þegar kemur að skuldum heimilisins – „Hefur reynst vel til þess fallin að halda fólki við efnið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fölsuðu bréf svo kennarar í Hofsstaðaskóla gætu fengið styrk til Frakklandsferðar – Kenna undirverktaka um

Fölsuðu bréf svo kennarar í Hofsstaðaskóla gætu fengið styrk til Frakklandsferðar – Kenna undirverktaka um
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Bæjarfulltrúi kærði bæjarstjórn Kópavogs til kærunefndar – Gerði í raun athugasemd við sína eigin skipan í ráð

Bæjarfulltrúi kærði bæjarstjórn Kópavogs til kærunefndar – Gerði í raun athugasemd við sína eigin skipan í ráð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tíu ára bandarísk stúlka lést úr hjartaáfalli í hitabylgjunni í Frakklandi

Tíu ára bandarísk stúlka lést úr hjartaáfalli í hitabylgjunni í Frakklandi