fbpx
Laugardagur 13.desember 2025
Fréttir

Símaþjófur handtekinn

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 3. nóvember 2021 05:39

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á níunda tímanum í gær handtók lögreglan mann í Hlíðahverfi en hann er grunaður um að hafa stolið farsíma. Eigandi símans tilkynnt um stuld á honum um klukkan 17 en hann var staddur í verslunarmiðstöð í Kringlunni þegar símanum var stolið. Eigandanum tókst að staðsetja símann sinn í Hlíðahverfi. Þar höfðu lögreglumenn afskipti af tveimur mönnum og var annar þeirra með símann í fórum sínum en sagðist eiga hann. En skilríki símaeigandans voru í farsímahulstrinu og því féll saga hins grunaða um sig sjálfa.

Á sjötta tímanum í gær var ofurölvi maður handtekinn í Hlíðahverfi. Ekki er vitað hvar hann býr og var hann því vistaður í fangageymslu.

Á ellefta tímanum var tilkynnt um mann í annarlegu ástandi í Miðborginni. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild til aðhlynningar. Síðar um nóttina hafði lögreglan afskipti af honum vegna þess hversu slæmu vímuástandi hann var í. Hann var vistaður í fangageymslu.

Á áttunda tímanum var tilkynn um innbrot og þjófnað úr geymslu í fjölbýlishúsi í Kópavogi. Verðmætum var stolið.

Einn ökumaður var handtekinn í nótt grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna og ítrekaðan akstur sviptur ökuréttindum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fékk hroll þegar hún las bréf MAST um mál hundsins Úffa – „Stofnanir verða að sýna mannúð“

Fékk hroll þegar hún las bréf MAST um mál hundsins Úffa – „Stofnanir verða að sýna mannúð“
Fréttir
Í gær

Margeir og Kitty til liðs við KAPP

Margeir og Kitty til liðs við KAPP
Fréttir
Í gær

Kalla eftir aðgerðum í kjölfar frétta um danska sæðisgjafann

Kalla eftir aðgerðum í kjölfar frétta um danska sæðisgjafann
Fréttir
Í gær

Gluggi kom af stað nágrannaerjum í Garðabæ – Bærinn skammaður fyrir vinnubrögð sín

Gluggi kom af stað nágrannaerjum í Garðabæ – Bærinn skammaður fyrir vinnubrögð sín
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mohamad Kourani kominn á almennan gang á Hólmsheiði innan um tvo Alzheimer-sjúklinga

Mohamad Kourani kominn á almennan gang á Hólmsheiði innan um tvo Alzheimer-sjúklinga
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bjóða fasteignaeigendum að fá heilt ár af leigutekjum greitt út strax

Bjóða fasteignaeigendum að fá heilt ár af leigutekjum greitt út strax
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Konan sem ekið var á á Suðurlandsbraut er látin

Konan sem ekið var á á Suðurlandsbraut er látin
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Arnar Eggert segir fólki misboðið og bíður eftir dómínó-áhrifum af ákvörðun Íslands

Arnar Eggert segir fólki misboðið og bíður eftir dómínó-áhrifum af ákvörðun Íslands