Laust fyrir klukkan átta í gærkvöld fékk lögregla tilkynningu um mann sem var að stofna til slagsmála á Laugaveginum í miðborg Reykjavíkur. Maðurinn reyndist vera erlendur ferðamaður sem var nýkominn til landsins og átti að vera í sóttkví. Var hann mjög drukkinn og lét dólgslega við lögreglumenn, neitaði að gefa upp nafn og hafði engin skilríki. Maðurinn er einnig grunaður um brot á sóttkví. Maðurinn var vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu.
Laust fyrir klukkan tíu í gærkvöld voru afskipti höfð af þremur ferðamönnum á veitingahúsi í miðborginni. Þeir voru nýkomnir til landsins og áttu að vera í sóttkví. Fólkið var handtekið og fært á lögreglustöð til skýrslutöku en lögregla var áður búin að hafa afskipti af þeim þar sem tilkynnt var um brot á sóttkví. Ferðamennirnir munu eiga flug frá landinu á morgun.
Ofangreint kemur fram í dagbók lögreglunnar. Þar segir einnig frá því að síðdegis í gær lenti leigbílstjóri í Mosfellsbæ í því að þrír menn sem hann ók úr miðbænum yfirgáfu bílinn án þess að greiða fargjaldið. Lögregla hafði afskipti af mönnunum og verða þeir ákærðir fyrir fjársvik.