fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Fréttir

Lögreglumaður greindur með Covid-19 – 18 sendir í sóttkví

Tobba Marinósdóttir
Föstudaginn 7. ágúst 2020 09:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimildir DV herma að COVID-19 smit hafi komið upp innan Lögreglunnar á höfuðborgarsvæði og hópur starfsmanna sé komin í sóttkví.

Hvorki náðist í lögreglustjóra né fjölmiðlafulltrúa lögreglunnar í morgun en fengust þó þau svör að von væri á tilkynningu frá lögreglunni.

Fréttin verður uppfærð.

Tilkynning frá lögreglunni barst 9:57 og er hér í heild sinni:  

Einn lögreglumaður hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur verið greindur með COVID-19, en talið er að viðkomandi hafi ekki smitast við störf sín hjá embættinu.

Gripið var til allra viðeigandi ráðstafana strax og málið kom upp í gær og voru þrettán aðrir lögreglumenn sendir í sóttkví vegna þessa, en að auki eru fimm lögreglumenn til viðbótar í úrvinnslusóttkví. Nú er unnið að því að tryggja mönnun á vaktir vegna þeirrar stöðu sem upp er komin og miðar þeirri vinnu vel.

Þess má geta að embættinu var skipt upp í sótthólf frá og með hádegi sl. föstudag, 31. júlí, og því hefur ofangreint áhrif á eina lögreglustöð í umdæminu, en ekki allar fjórar.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Áráttufullur perri í Reykjavík olli konum skelfingu – „Chupa Chupa“

Áráttufullur perri í Reykjavík olli konum skelfingu – „Chupa Chupa“
Fréttir
Í gær

Gullöld Donald Trump: Allt gengur forsetanum í hag

Gullöld Donald Trump: Allt gengur forsetanum í hag
Fréttir
Í gær

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þorbjörg Sigríður vill þyngja refsingar í ofbeldismálum

Þorbjörg Sigríður vill þyngja refsingar í ofbeldismálum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fölsuðu bréf svo kennarar í Hofsstaðaskóla gætu fengið styrk til Frakklandsferðar – Kenna undirverktaka um

Fölsuðu bréf svo kennarar í Hofsstaðaskóla gætu fengið styrk til Frakklandsferðar – Kenna undirverktaka um
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rússar breyta um taktík – Írönsku drónarnir verða sífellt hættulegri

Rússar breyta um taktík – Írönsku drónarnir verða sífellt hættulegri