Lögreglan á Suðurnesjum handtók í gær íslenskan karlmann á fimmtugsaldri vegna gruns um að hann hefði selt hlaupbangsa sem innihéldu fíkniefni. Maðurinn játaði sök.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Eins og greint var frá í fréttum í síðasta mánuði veiktust tvær unglingsstúlkur alvarlega eftir að hafa borðað hlaupbangsa sem innihéldu kannabisefni og morfín. Sælgætið höfðu þær þegið af ungum manni sem keypti það af eldri manni.
Lögreglan gerði húsleit hjá manninum, sem handtekinn var í gær, að fenginni heimild. Á heimili hans fundust tól og tæki til fíkniefnaframleiðslu, þar á meðal á hlaupböngsum. Maðurinn játaði að hafa framleitt fíkniefni og selt þau um í nokkurn tíma. Hann hefur ekki komið við sögu lögreglu áður vegna fíkniefnamála.
Rannsókn málsins er á lokastigi, að sögn lögreglu sem birtir í lok tilkynningar sinnar þessi mikilvægu skilaboð:
„Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.
Einnig er hægt að koma ábendingum á framfæri á Facebook – síðu lögreglunnar á Suðurnesjum: https://www.facebook.com/lss.abending/ “