fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Faraldurinn mun koma verst niður á Afríku

Ritstjórn DV
Föstudaginn 27. mars 2020 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þó fjöldi smita af völdum kórónuveirunnar sé enn ekki mikill í Afríku í samanburði við verst stöddu löndin í dag, Bandaríkin, Kína, Ítalíu, Spán og Frakkland, benda sérfræðingar  á að vandræðin séu rétt að hefjast á þessu næst stærsta og næst fjölmennasta svæði heims.

„Afríka fer verst út úr þessum faraldri,“ segir Senait Bayessa, svæðisstýra SOS Barnaþorpanna fyrir austur og suður Afríku. „Heilbrigðiskerfi margra afrískra landa eru nú þegar sprungin af völdum annarra sjúkdóma og eru ekki í stakk búin að taka á faraldri af þessari stærðargráðu.“

Fjöldi veirupinna, aðstaða til að mæla stóra hópa fólks, innleiðsla forvarna og úrræði fyrir meðhöndlun sýktra einstaklinga er stórlega ábótavant í Afríku.  Þá eru möguleikar á vitundavakningu um hvernig forðast beri smit óullnægjandi og viðbúið er að spítalar yfirfyllist með þeim afleiðingum að dánartölur verði háar. Þetta mun svo enn frekar lama efnahag Afríku sem fyrir er mjög brothættur.

Dauðsföllin verða minnsta áhyggjuefnið

„Flestar fjölskyldur í Afríku búa við fátækt og daglega baráttu við að útvega sér mat. Bara það mun gera fólki enn erfiðara fyrir með að forðast nálægð við annað fólk og smit,“ segir Bayessa.

Dr. Deqa Dimbil, læknir í Mogadishu í Sómalíu, tekur undir þessar áhyggjur Bayessa. „Það sem ég hef mestar áhyggjur af er versnandi efnahagsástand. Hér verður hungursneyð og við munum ekki geta séð fyrir okkur. Sá tímapunktur kemur að dauðsföll af völdum veirunnar verða minnsta áhyggjuefnið.“

Helmingur barna býr hjá ömmu og afa

Bayessa segir að faraldurinn muni koma sérstaklega illa niður á börnum í Afríku. Hún bendir á að vegna HIV/AIDS séu mörg börn foreldralaus og rannsóknir frá fimm Afríkjuríkjum sýna að helmingur allra barna býr hjá ömmu sinni og afa. Þar sem eldra fólk er berskjaldaðra fyrir Covid-19 veirunni er viðbúið að fjöldi barna muni sem höfðu áður misst foreldra sína, muni nú líka missa ömmu sína og afa.

Og Dimbil læknir tekur undir þetta. „Við þurfum að búa okkur undir þá staðreynd að börn munu missa foreldra.“

Neyðarsöfnun SOS

SOS Barnaþorpin víðsvegar um Afríku gera nú ráðstafanir til að mæta ógninni sem framundan og barnaþorpin sjálf eru vel í stakk búin til að minnka líkur á smiti innan þeirra. Mikið álag hefur verið á SOS Barnaþorpunum um heim allan.

„Kostnaður samtakanna úti í heimi eykst hratt á meðan framlögum fer fækkandi. Þess vegna hefur verið blásið til söfnunar um heim allan til að bregðast við ástandinu. SOS Barnaþorpin á Íslandi settu af stað söfnun í byrjun vikunnar og hafa nú þegar safnast um tvær milljónir króna,“ segir Hans Steinar Bjarnason, upplýsingafulltrúi SOS á Íslandi.

Ákall hefur komið um aðstoð frá SOS Barnaþorpunum á Ítalíu og viðbúið er að SOS í fleiri löndum þurfi á aðstoð að halda, sérstaklega í Afríku. „Við munum senda þá fjármuni sem safnast til SOS í því landi þar sem þörfin er talin mest hverju sinn,“ segir Hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Flassari fyrir dóm – Sakaður um að hafa sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi

Flassari fyrir dóm – Sakaður um að hafa sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi
Fréttir
Í gær

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“
Fréttir
Í gær

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Í gær

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“
Fréttir
Í gær

Tveir nýir meðeigendur hjá Expectus

Tveir nýir meðeigendur hjá Expectus