Fjórir Litháar eru ákærðir fyrir að hafa stolið miklu magni af tóbaki úr Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli. Samtals eru mennirnir vændir um að hafa farið í átta þjófnaðarleiðangra á Keflavíkurflugvöll þar sem þeir eru sagðir hafa stolið sígarettukartonum úr Fríhöfninni. Mennirnir keyptu sér flugmiða, innrituðu sig í flug en fóru aldrei um borð í flugvélina. Þess í stað fóru þeir í Fríhöfnina og samkvæmt ákæru tóku þeir ófrjálsri hendi 66 karton af sígarettum að verðmæti tæp hálf milljón.
Ákæra gegn einum manninum hefur verið birt í Lögbirtingablaðinu þar sem ekki hefur tekist að birta honum ákæru. Er hann kvaddur til að mæta, ásamt félögum sínum fyrir Héraðsdóm Reykjaness þann 8. september næstkomandi, þar sem málið verður tekið fyrir.
Lýsing í ákærunni á hinum meinta þjófnaði er eftirfarandi, en um átta tilvik er að ræða:
Er þess krafist að mennirnir verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Fríhöfnin gerir einkaréttarkröfu á mennina sem er töluvert hærri en verðmæti tóbaksins sem þeir eru sagðir hafa stolið, en Fríhöfnin krefst skaðabóta upp á ríflega 13 milljónir króna frá Litháunum.