Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Haft er eftir Jóhannesi að það sé jákvætt að verið sé að aflétta ferðahömlum en það skerði möguleika ferðaþjónustunnar að ýmsar hindranir eru settar upp í sóttvarnarskyni. Frá og með deginum í dag er öllum sem koma til landsins og hafa dvalið í meira en sólarhring í löndum sem sóttvarnarlæknir skilgreinir sem áhættusvæði skylt að fara í 14 daga sóttkví. Það er þó hægt að losna við hana með því að fara í sýnatöku sem verður án endurgjalds fram til næstu mánaðamóta. Frá 1. júlí mun sýnataka kosta 15.000 krónur.
Morgunblaðið hefur eftir Jóhannesi þeir sem hafi verið búnir að bóka ferðir, sérstaklega hópferðir, haf miklar áhyggjur af þessum hindrunum hvað varðar skimun og að ekki verði hægt að framvísa vottorðum erlendis frá. Reglugerðin valdi því að það sé of mikil fjárhagsleg áhætta við að koma hingað til lands þar sem fólk geti ekki verið öruggt um að þurfa ekki að fara í sóttkví fyrr en það er komið hingað. Það geti haft mikið fjárhagslegt tjón í för með sér auk þess sem það eyðileggi fríið.
„Það má segja að þetta hafi þau áhrif að ferð til Íslands sé einhvers konar lotterí. Enginn ferðast með fjölskylduna til annars lands til að sitja inni á hótelherbergi í fjórtán daga og horfa út um gluggann.”