fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Fréttir

Björn Ingi svartsýnn eftir tíðindi dagsins – „Ég vil nú ekki vera með nein leiðindi, en…“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Mánudaginn 8. júní 2020 19:42

Björn Ingi Hrafnsson Fyrrverandi borgarfulltrúi og fjölmiðlamaður.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, telur að aðilar í ferðaþjónustu hafi fengið enn eitt höggið eftir tíðindi dagsins og sjái margir fram á erfiðar ákvarðanir á næstunni.

„Ég vil nú ekki vera með nein leiðindi, en ég vona að mér leyfist að benda á að tíðindi dagsins þýða í reynd að ferðamennska verður í algjörri mýflugumynd á næstunni hér á landi. Kannski er það markmiðið, að ná að „opna landið“ án þess að hingað flæði inn ferðamenn,“ skrifar Björn á Facebook síðu sína. 

Byggir Björn þetta á tíðindum dagsins um hvernig skimunum og sóttvörnum verður hagað á Keflavíkurflugvelli. En afkastageta í sýnatöku verður um 2.000 próf á dag og ferðaþjónusta og flugfélög þurfi að taka mið af því.

„Af hverju segi ég þetta? Jú, þetta er bara einfaldur útreikningur og mat á staðreyndum. Þórólfur sóttvarnarlæknir segir að afkastagetan í sýnatöku séu 2.000 próf á dag og flugfélög og ferðaþjónustan verði að taka mið af því.

Það eru semsé 14 þúsund manns á viku, eitthvað um 60-70 þúsund manns á mánuði. Inni í þessari tölu eru ekki börn en það sem felst í henni eru allir komufarþegar í Leifsstöð, allir sem koma hingað flugleiðis annars staðar t.d. á Reykjavíkurflugvelli, allir farþegar skemmtiferðaskipa og farþegar Norrænu (hún tekur um 1.400 manns). Inni í þessari tölu verða líka þeir Íslendingar sem koma heim.“

Þetta bendi til þess að háannatíminn í ferðaþjónustunni, nú í sumar, verði ekki mikill háannatími.

„Af sjálfu leiðir að háannatíminn fram undan hér á landi verður ekki undirlagður af erlendum ferðamönnum. Svo mikið er ljóst. Líklega eru margir í þeim geira heldur hnípnir þetta kvöldið og horfa fram á erfiðar ákvarðanir.“

Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir, greindi þó frá því í dag að ef allir farþegar frá vissum svæðum og löndum séu neikvæðir fyrir kórónuveirunni þá gæti það þýtt að farþegar frá slíkum svæðum þurfi framvegis ekki að undirgangast próf. Þannig sé hægt að fjölga ferðamönnum smátt og smátt.

Hins vegar eru aðeins átta flugfélög sem hyggjast fljúga til landsins á næstunni, samanborið við 23 félög á síðasta ári. Því mun líklega vera bið á því að ferðamannastraumurinn rétti úr kútnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Þorvaldur Lúðvík íhugar réttarstöðu sína eftir Kastljósið í gær – „Ég hefði engu breytt eða gert öðruvísi“

Þorvaldur Lúðvík íhugar réttarstöðu sína eftir Kastljósið í gær – „Ég hefði engu breytt eða gert öðruvísi“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Kári segir að útlitið sé dökkt: „Aðal­málið er að markaðirn­ir eru skelfi­leg­ir“

Kári segir að útlitið sé dökkt: „Aðal­málið er að markaðirn­ir eru skelfi­leg­ir“
Fréttir
Í gær

Leigðu ferðamanni bíl á sumardekkjum í október

Leigðu ferðamanni bíl á sumardekkjum í október
Fréttir
Í gær

Vopnafjarðarmálið: Jón Þór reyndi að koma sökinni á Hafdísi – „Hann hefur verið mjög duglegur sjálfur að rústa sínu mannorði“

Vopnafjarðarmálið: Jón Þór reyndi að koma sökinni á Hafdísi – „Hann hefur verið mjög duglegur sjálfur að rústa sínu mannorði“
Fréttir
Í gær

Spæjarastofa Jóns Óttars sökuð um að nýta stolin gögn frá lögreglu og saksóknara til að selja þjónustu sína

Spæjarastofa Jóns Óttars sökuð um að nýta stolin gögn frá lögreglu og saksóknara til að selja þjónustu sína
Fréttir
Í gær

„Ég væri bara að vinna í banka eða í neyslu ef ég ætti ekki svona gott bakland“

„Ég væri bara að vinna í banka eða í neyslu ef ég ætti ekki svona gott bakland“
Fréttir
Í gær

Faðir Sigurbjargar stígur fram og gefur lítið fyrir svör Sigrúnar: „Mér þótti ég sjá lygina leka niður hökuna á henni“

Faðir Sigurbjargar stígur fram og gefur lítið fyrir svör Sigrúnar: „Mér þótti ég sjá lygina leka niður hökuna á henni“
Fréttir
Í gær

Ekki sátt við það sem hún sá í sundi um helgina – „Mér finnst þetta ógeðslegt!“

Ekki sátt við það sem hún sá í sundi um helgina – „Mér finnst þetta ógeðslegt!“