fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Fauk í Björn eftir símtal frá frænku hans: „Ég missti hökuna niður í bringu“ – Grátbað hann um að reyna allt til að snúa ákvörðuninni við

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 23. janúar 2020 09:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Í síðustu viku missti ég hökuna niður í bringu. Og þá meina ég það í orðsins fyllstu merkingu. Það var þannig að mér barst símtal um 22.15 rétt eftir síðari kvöldfréttir frá ágætri frænku minni sem búsett er í austurhluta borgarinnar.“

Svona hefst pistill sem Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, skrifar í Morgunblaðið í dag. Í greininni er Björn mjög gagnrýninn á meirihlutann í borginni og segir hann frá umræddu símtali frá frænku hans sem gerði hann reiðan.

Var talsvert brugðið

„Þessi frænka mín sem hringdi í mig hefur aldrei kosið neitt annað en Samfylkinguna að hennar sögn, þrátt fyrir að ég, frændi hennar, hafi margsinnis reynt að snúa henni í aðrar áttir. En svona er það nú bara, mér þykir jafn vænt um hana þrátt fyrir.“

Svo vill til að frænka Björns á barn á leikskólaaldri. Hann segir að hún sé útivinnandi og einstætt foreldri og  sækir vinnu miðsvæðis í borginni. „Og hún er einn af þeim kjósendum Samfylkingar sem eiga erfitt með að viðurkenna það sem aflaga fer hjá þessum blessaða flokki. Í þessu símtali okkar kvað þó heldur betur við annan tón. Og er það kannski ekki skrýtið að mér, frænda hennar, hafi brugðið allverulega. Enda hélt ég í fyrstu, í sannleika sagt, að hún væri að gantast í mér, eins og hún á til að gera.“

Að gefast upp á að búa í Reykjavík

Björn segir að frænka hans hafi tilkynnt honum að hún væri að gefast upp á því að búa í Reykjavík. Hún hafi hreinlega beðið hann, borgarfulltrúann og frænda sinn, að beita sér fyrir því að snúa umdeildri ákvörðun meirihlutans við um að stytta opnunartíma leikskóla borgarinnar.

„Staðreyndin er sú að hún þarf að aka til og frá vinnu og það tekur hana 70 mínútur, ef hún er heppin, fram og til baka, daglega. 35 mínútur hvora leið. Og stundum, sagði hún mér, getur það tekið á morgnana hátt í eina klukkustund aðra leiðina. Þessi ákvörðun meirihlutans olli henni það miklum áhyggjum og kvíða að hún hringdi í frænda sinn, sem er í flokki sem hún hefur aldrei stutt. Ekki það, hún hringir nú stundum í mig, en aldrei talar hún við mig um pólitík enda hefur verið þegjandi samkomulag á milli okkar, frá því að hún fór að hafa vit á stjórnmálum, að ræða hana ekki.“

Í þetta skiptið hafi henni verið mikið niðri fyrir. „Í þetta skiptið, og kannski eðlilega, grátbað hún mig um reyna allt hvað ég gæti að snúa þessari ákvörðun við, enda hafði hún í orðsins fyllstu merkingu miklar áhyggjur af því hvað vinnuveitandi hennar myndi segja þegar hún þyrfti að tilkynna honum að hún yrði að fara í lægra starfshlutfall ef ákvörðun meirihlutans gengi eftir. Einstæða móðirin sem hefur lítið á milli handanna. Hún kvaðst kvíða þessu mjög. Ég verð að viðurkenna að það fauk allhressilega í mig við að hlusta á frásögn hennar. Og hugsa um afleiðingar þessarar ákvörðunartöku meirihlutans.“

„Það er ekki eitt, það er allt“

Björn segir að þetta sé dagsatt og ekki sé um neinar ýkjur að ræða.

„Þessi vel gerða manneskja er ekki ein um þetta vandamál, enda hefur umferðarþunginn í Reykjavík aldrei verið meiri, og enginn meirihluti hefur boðað jafn mikinn óvinafögnuð og þessi meirihluti. Samt sem áður ákveður meirihlutinn að vísa frá tillögu okkar þess efnis að falla frá ákvörðun hans um styttingu opnunartíma leikskólanna á síðasta borgarstjórnarfundi. Þetta er sennilega óvinsælasti meirihluti sem hefur starfað í borginni frá upphafi borgarstjórnar. Þetta er meirihlutinn sem er með færri atkvæði en minnihlutinn á bak við sig. Það er ekki bara umferðarþunginn sem meirihlutinn þverskallast við að leysa, heldur eru það fjármálin, skólamálin og skipulagsmálin svo fátt eitt sé nefnt. Við getum nefnt mörg önnur mál, s.s. Elliðaárdalinn, sameiningar í Grafarvogi, nýtt leiðakerfi strætó, vegakerfið, klóakmálin, innkaupamálin og margt, margt fleira. Þetta er saga, og þetta er saga meirihlutans. Það er ekki eitt, það er allt.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Í gær

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“
Fréttir
Í gær

Lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu slysi fyrir sjö árum en komst engu að síður á topp Hvannadalshnjúks

Lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu slysi fyrir sjö árum en komst engu að síður á topp Hvannadalshnjúks
Fréttir
Í gær

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu
Fréttir
Í gær

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“
Fréttir
Í gær

Fékk skilorð fyrir ofsafengna sveðjuárás

Fékk skilorð fyrir ofsafengna sveðjuárás