fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi kalla eftir ítarlegri rannsókn á málum Samherja

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 13. nóvember 2019 17:21

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi – SFS – vilja undirstrika að stefna félagsins er að félagar fari ávallt að lögum og reglum og gildir þá einu í hvaða landi starfsemin fer fram. Samtökin kalla eftir rannsókn á máli Samherja sem hefur verið sakaður um að greiða mútur í Namibíu til að komast yfir fiskveiðikvóta.

Ályktun SFS vegna málsins er eftirfarandi:

„Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi vilja taka fram vegna umræðu um starfsemi Samherja hf. í Afríku, að það hefur ætíð verið afstaða samtakanna að allir félagsmenn skuli fara að lögum og eftir reglum. Gildir þá einu hvar viðkomandi starfsemi fer fram, á Íslandi eða í útlöndum.

Hvað varðar framkomnar ásakanir á hendur Samherja hf., þá eru þær í eðli sínu alvarlegar og það er fyrirtækisins að bregðast við þeim. Ljóst er að mál af þessu tagi getur haft áhrif á orðspor íslensks sjávarútvegs og stöðu á alþjóðlegum markaði. Því er brýnt að málið verði rannsakað og hið rétta komi fram. Það er allra hagur, ekki síst þeirra sem bornir eru þungum sökum.“

Undir þetta skrifar Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar