fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Fréttir

Brengluð nekt: „Minna í því að sturta sig á almannafæri svo glansmyndin á samfélagsmiðlum brotni ekki í þúsund mola“

Svarthöfði
Sunnudaginn 10. nóvember 2019 11:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ein af vinsælustu fréttunum á DV í vikunni fjallaði um unga konu á samfélagsmiðli sem var kölluð hóra. Svarthöfði hefur tekið eftir þessari ungu konu áður, en hún virðist ætla að meika það á kynþokka. Eins og svo margir forfeður hennar.

Það hefur eitt angrað Svarthöfða í röksemdarfærslu ungu konunnar. Hún segir að nekt sé tabú og vill berjast gegn ritskoðun samfélagsmiðla á kvenlíkamanum og væntanlega gera nekt þá bara að eðlilegasta hlut í heimi.

Þessi röksemdarfærsla veldur Svarthöfða eilitlum áhyggjum. Svarthöfði veltir nefnilega fyrir sér hvenær í ósköpunum nekt varð tabú á Íslandi. Í langan tíma, langt áður en unga konan tók sinn fyrsta andardrátt utan móðurkviðar, hefur varla verið hægt að horfa á íslenskt sjónvarpsefni eða kvikmyndir án þess að einhver sé nakinn. Og oft eru margir naktir. Mannslíkamar í öllum stærðum og gerðum, ófilteraðir og stundum yfirlýstir. Íslendingar sturta sig líka naktir áður en þeir fara í sund. Sturta sig eftir líkamsrækt. Við ölumst upp við að vera nakin með öðrum af sama kyni, sjá fjölbreytileikann í líkamsgerðum og kippa okkur ekkert sérstaklega upp við það.

Nú hefur greinilega orðið breyting á. Unga kynslóðin lítur á nekt sem tabú, keppist um að selja kynþokka sinn og er hugsanlega minna í því að sturta sig á almannafæri svo glansmyndin á samfélagsmiðlum brotni ekki í þúsund mola. Svarthöfa finnst þetta mikið áhyggjuefni. Þróun sem þarf að snúa við. Hvenær varð allt svona brenglað?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Úkraínsk sérsveit hefur eyðilagt rússnesk hergögn að verðmæti 660 milljarða

Úkraínsk sérsveit hefur eyðilagt rússnesk hergögn að verðmæti 660 milljarða
Fréttir
Í gær

Kostnaður við starfshópa Guðlaugs Þórs hljóp á hundruð milljónum króna – Flokksgæðingar á lista

Kostnaður við starfshópa Guðlaugs Þórs hljóp á hundruð milljónum króna – Flokksgæðingar á lista
Fréttir
Í gær

Dagmar brá við óþægilegt símtal frá lögreglunni – Biggi Sævars lét verða af hótuninni – „Týpísk taktík hjá svona mönnum“

Dagmar brá við óþægilegt símtal frá lögreglunni – Biggi Sævars lét verða af hótuninni – „Týpísk taktík hjá svona mönnum“
Fréttir
Í gær

Össur telur að málþófið muni reynast Sjálfstæðismönnum dýrkeypt

Össur telur að málþófið muni reynast Sjálfstæðismönnum dýrkeypt
Fréttir
Í gær

Hvað hefði brúðkaup Bezos kostað á Íslandi? – „Var mjög rausnarlegur og ég komst upp í 2,7 milljarða“ 

Hvað hefði brúðkaup Bezos kostað á Íslandi? – „Var mjög rausnarlegur og ég komst upp í 2,7 milljarða“ 
Fréttir
Í gær

Guðjón skaut á strandveiðar í skugga banaslyss – „Ertu hálfviti?“

Guðjón skaut á strandveiðar í skugga banaslyss – „Ertu hálfviti?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjónvarpsstöðin SÝN opnar upp á gátt fyrir alla landsmenn frá og með 1. ágúst

Sjónvarpsstöðin SÝN opnar upp á gátt fyrir alla landsmenn frá og með 1. ágúst
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Grindavíkurbær auglýsir íbúðir í sinni eigu til leigu

Grindavíkurbær auglýsir íbúðir í sinni eigu til leigu