fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Faðir Sveins Inga segir ráðherra hafa blóð á höndum sínum: „Þessi ljúflingur tók líf sitt inni á geðdeild sjúkrahússins á Akureyri“

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 20. október 2019 11:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jack Hrafnkell Daníelsson pistlahöfundur er þekktur fyrir að tala tæpitungulaust. Hann minnist þess á Facebook-síðu sinni að nú séu sjö ár liðin síðan sonur hans, Sveinn Ingi, tók eigið líf á geðdeild sjúkrahússins á Akureyri. Jack Hrafnkell segir það ekki einsdæmi og fullyrðir að ráðherrar síðustu ára hafi blóð á höndum sér. Hann segir að afleita stöðu geðheilbrigðismála á Íslandi hafa orðið til þess að fjöldi fólks hafi látist sem hefði verið hægt að bjarga.

Jack Hrafnkell Daníelsson.

Í samtali við DV segir Jack Hrafnkell nauðsynlegt að minna á þetta því sjálfsvígstíðni á Íslandi sé að aukast. „Það veitir ekkert af því að koma þessum málum á framfæri í ljósi þess að sjáfsvígstíðnin er að aukast fremur en hitt og það eru gífurlegir fordómar innan heilbrigðisstéttarinar gagnvart geðveikum og fíklum,“ segir Jack Hrafnkell.

Sveinn Ingi var 19 ára þegar hann lést en hann hafði barist við eiturlyfjafíkn og geðræn vandamál. Hann hefði orðið 27 ára í desember. „Það eru í dag sjö ár síðan þessi ljúflingur tók líf sitt inni á geðdeild sjúkrahússins á Akureyri. Sjö ár og enn erum við að heyra af ungu fólki sem á við geðræn vandamál að stríða og unga fíkla sem koma að lokuðum dyrum hjá þeim stofnunum sem á með réttu að hjálpa þeim en mætir bara fyrirlitningu, útskúfun og fordómum frá því „fagfólki“ sem ætti að leiðbeina þeim, hjálpa þeim og aðstoða við að komast til heilsu á ný,“ segir Jack Hrafnkell.

Hann segir engan vilja til að bæta þessi mál. „Ég hef ekki tölu á þeim einstaklingum sem hefur veirð vísað frá geðdeildum, bráðamóttöku eða hreinlega verið neitað um aðstoð á grunni fordóma og heimsku eða jafnvel tekið líf sitt inni á geðdeildum eða meðferðarstofnunum þessi sjö ár frá því sonur minn kvaddi þetta líf og það er eins og það sé engin vilji hjá stjórnvöldum þessa lands til að bæta ástandið,“ segir Jack Hrafnkell.

Hann segir að sér hrylli við þeirri tilhugsun að fleiri foreldrar endi í hans stöðu: „Nú erum við enn einu sinni að heyra að það eigi að spara á heilbrigðis og velferðarsviði LSH í boði ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. Mig hryllir við þeirri tilhugsun að fleiri foreldrar eigi eftir að missa börnin sín vegna þeirrar stefnu sem stjórnvöld hafa sett sér og það má alveg segja það upphátt að þeir ráðherrar sem hafa stjórnað landinu frá hruni eru með blóð þessa unga fólks á höndum sér og það verður aldrei þvegið burt. Já, ég er enn reiður og sár og verð það mjög líklega það sem ég á eftir ólifað en ég er líka reiður og sár út í sjálfan mig því hvað EF ég hefði gert, hugsað, sagt eitthvað annað? Hvað EF? Hvað EF? Hvað EF ég? Lætur mig aldrei í friði.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala