fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fréttir

Farangur Selju Dísar allur í rúst eftir skoðun: „Ég ætla að senda kvörtun“ – Sjáðu myndirnar

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 5. janúar 2019 16:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var búið að rífa og tæta hressilega en ekki búið að ganga frá neinu aftur þegar Selja Dís Jónsdóttir fékk farangurinn sinn í hendur eftir skoðun tollyfirvalda á Keflavíkurflugvelli. Jólakúlum hafði verið sturtað um alla töskuna, jólapappír var rifinn utan af jólagjöf til móður Selju, búið var að róta út nær öllu innihaldi snyrtibuddu, rafhlöður úr pakkningunni voru á víð og dreif og renndir glærir smávasar, fulli af dóti, voru tómir og innihaldið út um allt. – Það er þó ekki eins og að grunsamlegar ástæður hafi verið fyrir skoðun töskunnar, ástæðan fyrir því að taskan var yfirleitt skoðuð á Keflavíkurflugvelli var sú að hún skilaði sér ekki með farangri úr flugvélinni og því þurfti taskan að fara án farþega í gegnum tollhlið og var síðan skilað í þessu ömurlega ástandi. Þetta segir Selja í samtali við DV.

Selja var að koma heim úr afar velheppnuðu jólafríi í Tampa í Florida með sambýlismanni sínum og syni sínum. Á flugvellinum í Bandaríkjunum lenti Selja í tollskoðun og segir hún að svo vel hafi tolleftirlitið ytra gengið frá eftir sig að engin ummerki voru um skoðunina. Hér heima tók við önnur skoðun af fyrrgreindum ástæðum, taskan skilaði sér ekki en töskur sambýlismannsins og sonarins skiluðu sér. Þurfti Selja að gefa skriflegt leyfi til tollyfirvalda um að hún heimilaði skoðun á innihaldi töskunnar.

Selja tók fjölmargar myndir af töskunni sem fylgja hér með í fréttinni. Samantekið er yfirlit hennar um viðskilnað tollyfirvalda við töskuna eftirfarandi:

1.Búið að sturta jólakúlum út um allt, ekki ein eftir í upprunalegu pakkningunni
2. Rafhlöður út um allt, ekki í sinni pakkningu
3. Tvær litlar jólaseríur komnar úr kössunum og búið að kveikja á annarri þeirra
4. Búið að taka tappann af hárlakkinu sem annars er pikkfastur á
5. Rifinn jólapappír á jólagjöf til móður Selju
6. Búið að opna snyrtibuddu og mest allt úr henni á víð og dreif, ekki búið að renna aftur fyrir (hvíta snyrtibuddan)
7. Búið að rífa plastpoka sem hún lét utan um Epsom-salt
8. Renndur glær plastvasi sem er smelltur innan á töskuna var fullur af allskyns smádóti þegar Selja pakkaði, var galtómur og rennilásinn órenndur. Draslið úr honum lá á víð og dreif.

„Ég ætla að senda kvörtun til tollyfirvalda og myndirnar með,“ segir Selja í samtali við DV. Hún er samt hin hressasta þrátt fyrir þessi ósköp og segir: „Annars er ég bara nokkuð góð og hlakka til ævintýra ársins 2019.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lindakirkju barst dularfullt bréf – „Olli þó smá vangaveltum“

Lindakirkju barst dularfullt bréf – „Olli þó smá vangaveltum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur var sviptur lækningaleyfi en segist einfaldlega hafa tilkynnt símaþjónustu til landlæknis -„Þeir eiga að kunna lögin“

Guðmundur var sviptur lækningaleyfi en segist einfaldlega hafa tilkynnt símaþjónustu til landlæknis -„Þeir eiga að kunna lögin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Spæjarastofan PPP stal líka gögnum frá stórum þrotabúum – „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“

Spæjarastofan PPP stal líka gögnum frá stórum þrotabúum – „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“