Kryddsíldin á Stöð 2 sló í gegn ef marka er umræðurnar sem áttu sér stað á Twitter á meðan þátturinn stóð yfir. Vildu sumir meina að ekki hefði farið í loftið fjörugri og betri þáttur síðan að Davíð Oddsson og Jón Baldvin tókust á hér á árum áður.
Eins og komið hefur fram var Klaustursmálið fyrirferðarmikið og fóru fjölmörg tíst í að gera grín að því.
Hér fyrir neðan má sjá brot af því besta af Twitter og þeir sem vilja skoða fleiri tíst er bent á að fara á twitter og skrifa #kryddsíld til að fá umræðurnar allar.
Þetta er actually slightly meira dysfunctional matarboð en kvöldverðurinn í Festen. #kryddsíld
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) December 31, 2018
Dýrka að enginn snertir matinn nema Sigurður Ingi sem leggur ekki frá sér gaffalinn. #kryddsíld
— gunnare (@gunnare) December 31, 2018
ÞKG: „Þið mættuð taka ákvarðanir yfir höfuð.“
King BB: „Við tókum ákvarðanir. Við tókum meðal annars ákvörðun um að fella allar tillögur stjórnarandstöðunnar af því að þær voru vondar.“#kryddsíld— Gisli F. Valdorsson (@gislivaldorsson) December 31, 2018
Sigmundur, nú segir Guardian að Miðflokkurinn sé popúlískur.
Sigmundur: *gerir fjölmiðilinn tortryggilegan* og þess vegna erum við ekki popúlistar#kryddsíld
— Geir Finnsson (@geirfinns) December 31, 2018
Bjarni Ben ekki alveg að skilja alvarleika #klausturfokk það var ekkert verið að gagnrýna tal um pólitíkina heldur niðrandi umræðu um konur, fatlaða og fl. #kryddsíld
— Heiða Björg (@heidabjorg) December 31, 2018
Vel gert hjá @stod2 að skenkja Sigmundi bjór, sagan hefur sýnt að hann leikur á alls oddi kominn í prómíl #kryddsíld
— Tómas A. Árnason (@efstibaer) December 31, 2018
Ég elska að fylgjast með Sigurði Inga þegar Sigmundur Davíð talar í sjónvarpsþáttum #kryddsild
— Andres Jonsson (@andresjons) December 31, 2018
Það er eitthvað við það að sjá SDG ræða #klausturgate með ískaldan fyrir framan sig. #kryddsild
— Hafrún Kristjans (@HabbaKriss) December 31, 2018
Inga Sæland góð í #kryddsíld hún skilur hve meiðandi og skaðleg orðræða Klausturkarlanna var
— Heiða Björg (@heidabjorg) December 31, 2018
Ekki stoppa Ingu þegar hún loks hjólar í þvaðrið í Sigmundi #Kryddsíld
— Maggi Peran (@maggiperan) December 31, 2018
Ég vil fá GIF af:
1. Svipnum á BB þegar SDG talaði um #klausturfokk
2. SIJ að hnerra
3. Loga og Ingu að hvísla og flissa#kryddsíld— Áslaug Karen (@aslaugkaren) December 31, 2018
Algjörlega skelfilegt val á manni ársins hjá Stöð 2. Er þetta ekki bara eitthvað djók? Hvað hafa margir fv. starfsmenn Eflingar farið í „veikindaleyfi“ frá því að þetta brjálaða fólk tók við völdum í félaginu?#kryddsild
— Gisli F. Valdorsson (@gislivaldorsson) December 31, 2018
Getum við æviráðið Katrínu Jakobs sem forsætisráðherra? #kryddsíld
— Gaukur (@gaukuru) December 31, 2018
Guardian sagði að Borgarahreyfingin hafi verið populistaflokkur en að Píratar væru það ekki. #kryddsíld
— Dóra Björt (@DoraBjort) December 31, 2018
Forsætisráðherra, @katrinjak í vöruinnsetningu ársins. #kryddsíld pic.twitter.com/oeOdEsdMHD
— Magnus Ragnarsson (@MagnusRagnars) December 31, 2018
Hvers vegna er Sigmundur aldrei látinn skýra þessar dylgjur sínar? Nú smyr hann soranum à sessunauta sína í #Kryddsíld og segist oft hafa talað ógeðslega um fólk með “sumum” þeirra. Hverjum Sigmundur? Hættu þessum róg!
— Þórhildur Sunna (@sunnago) December 31, 2018
Bjarni vann í bæjarvinnunni sem unglingur og skilur stöðu fólks á lágmarkslaunum. Maður fólksins. #kryddsíld
— Karen Kjartansdottir (@karendrofn) December 31, 2018
Sá viðmælandi sem opnar einn Bola með tönnunum og drekkur af stút fær mitt atkvæði í næstu kosningum #kryddsild
— Orri Freyr Rúnarsson (@OrriFreyr) December 31, 2018
@hnetusmjor er svo með þetta! #kryddsíld
— Auðunn Blöndal (@Auddib) December 31, 2018
Bjarni Ben: ÉG NENNI EKKI AÐ TALA UM ÞETTA LENGUR. TALIÐ UM MIG HALLOOÓÓ #Kryddsíld #cantmakethisshitup
— Katla Hólm (@Katla_Holm) December 31, 2018
Skemmtilegt að það sést í Klaustursbarinn út um gluggann í #kryddsíld
— Ármann Óli (@armannolih) December 31, 2018
Auðvitað ver BB King hélt sinn mann SDG, hann er jú búinn að eyða heillri helgi með honum í bústað þar sem þeir áttu rómantíska rúnta sem innihélt Mountain Dew og ís í brauði, enda er það endurspegla gríðarlegt bromance #kryddsíld
— Ágúst Bjarni (@AgustBjarnimma) December 31, 2018
af hverju í fjáranum var klippt á Herra Hnetusmjör í miðju kafi að rappa ofan í stjórnmálamennina í lokin?! Ég var mjög spenntur að fylgjast með öllum sjálftökunum (e. selfies) og vandræðalega svipnum á Sigmundi… vonbrigði ársins. #kryddsíld
— Viktor Valgarðsson (@viktor888) December 31, 2018
“Þessi frjálslynda ríkisstjórn” – Sigurður Ingi. ? #kryddsíld
— Dóra Björt (@DoraBjort) December 31, 2018
Kveikti á Kryddsíldinni og labbaði bara inn í einhverja lifandi martröð; einhver hræðilegur þríhyrningur af Ingu Sæland, Heimi Má og Sigmundi Davíð, og eitthvað tómeygt fólk í kringum þau.
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) December 31, 2018