fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fréttir

Valdís varar við ferðamönnum sem sigla undir fölsku flaggi – Lenti í einum slíkum sjálf: „Hann hefur tekið sér góðan tíma í að leita“

Hjálmar Friðriksson
Miðvikudaginn 15. ágúst 2018 10:40

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í síðustu viku varaði Lögreglan á Norðurlandi íbúa við erlendum ferðamanni sem ýmist gekk inn í hús eða bankað á dyr hjá fólki i umdæminu. Lögregla sagði ekki ljóst hvort umræddur maður væri innbrotsþjófur eða hreinlega að leita sér gistingar. Valdís Hálfdánardóttir, íbúi á Hofsósi, er telur allar líkur á því að maðurinn hafi verið á ferðinni í saknæmum tilgangi og hann hafi farið inn til hennar.

Hún greinir frá því á Facebook að á dögunum var brotist inn til hennar meðan hún var erlendis en eiginmaður hennar í heyskap. Í samtali við DV segir hún allt benda til þess að hún sé ekki sú eina í Skagafirði sem  hafi lent í þjófinum sem dulbýr sig sem ferðamann. Að hennar sögn er talið að þetta sé gengi sem fer á milli landshluta og því full ástæða til að vera íbúa á landsbyggðinni við þessum mönnum.

„Þann 6. ágúst síðastliðinn var ég í Kanada og eiginmaður minn upp í sveit í heyskap. Börnin okkar voru í pössun. Elskulegir íbúar Hofsóss urðu varir við undarlegar mannaferðir og létu vita á sameiginlegri íbúasíðu á Facebook. Kauði gekk víst í hús á Hofsósi og bankaði, ef komið var til dyra þá þóttist hann vera að leita að hóteli, ef enginn kom til dyra fór hann inn, ef það var ólæst, og leitaði verðmæta,“ segir Valdís en í kjölfarið bað hún konu sem var stödd í bænum að læsa húsinu.

Á laugardaginn komst hún svo að því að maðurinn hafði komist inn í húsið. „Við komumst svo að því að búið er að taka afmælispeninga barnanna okkar, sparibauka, skartgripi og peninga sem voru brúðargjöf, mikla fjármuni í það heila. Þessir peningar voru faldir á nokkrum stöðum svo hann hefur tekið sér góðan tíma í að leita. Hann lagði bílnum sínum í innkeyrslunni okkar, mögulega hvítum Duster,“ segir Valdís.

Hún biðlar til allra sem kunna að hafa orðið varið við manninn þann 6. ágúst að hafa samband við sig eða lögreglu. „Mig langar svo til að finna þennan mann og í smá bjartsýniskasti langar mig svo til að biðla til þeirra sem voru á Hofsósi þennan dag að athuga hvort hvítur Duster sé einhversstaðar mögulega á mynd, Snapchat eða eitthvað álíka þar sem hægt væri að sjá glitta í bílnúmer. Eins vil ég biðja þá sem sáu þennan mann að hafa samband við mig eða lögregluna. Eins vil ég hvetja fólk til að fara yfir eigur sínar og athuga hvort eitthvað vanti. Mikilvægt er að allir hafi augun opin og hjálpist að við að stöðva þessa óprúttnu aðila,“ segir Valdís.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögreglan lýsir eftir manni

Lögreglan lýsir eftir manni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Franska konan úrskurðuð í lengra gæsluvarðhald

Franska konan úrskurðuð í lengra gæsluvarðhald
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Harmleikurinn á Edition-hótelinu: Lögreglan hér á landi í sambandi við frönsku lögregluna

Harmleikurinn á Edition-hótelinu: Lögreglan hér á landi í sambandi við frönsku lögregluna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

„Það var alltaf bíll sem kom einu sinni í mánuði um nótt og var svo farinn eldsnemma morguns“

„Það var alltaf bíll sem kom einu sinni í mánuði um nótt og var svo farinn eldsnemma morguns“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hvarf Jóns Þrastar Jónssonar: Írskir lögreglumenn munu taka skýrslur af 35 manns hérlendis

Hvarf Jóns Þrastar Jónssonar: Írskir lögreglumenn munu taka skýrslur af 35 manns hérlendis
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pétur sár út í Kristrúnu: Segir þúsundum Íslendinga hafa runnið kalt vatn milli skinns og hörunds við þessi orð hennar

Pétur sár út í Kristrúnu: Segir þúsundum Íslendinga hafa runnið kalt vatn milli skinns og hörunds við þessi orð hennar