fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fréttir

Frændur og frænkur sem fáir vita af

Björn Þorfinnsson
Fimmtudaginn 13. júlí 2017 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslendingar hafa í aldanna rás verið afar áhugasamir um ættfræði sem er mjög skiljanlegt enda samfélagið fámennt og allir skyldir með einhverjum hætti. Yfirleitt fer þó vitneskjan um tengslin að rofna þegar komið er fram í aðra eða þriðju kynslóð. DV tók saman nokkra landsþekkta einstaklinga sem eru náskyldir en fæstir vita af. Þá myndi DV fagna fleiri slíkum ábendingum frá lesendum.

Vilja hafa áhrif

Ástþór W. Magnússon, raðframbjóðandi til forsetaembættisins, er móðurbróðir Jóns Gunnarssonar, samgönguráðherra Sjálfstæðisflokksins. Móðir Jóns heitir Erla D. Magnúsdóttir og er Ástþór yngsti bróðir hennar.

Með kjarnakonur í frændgarðinum

Útvarpsmaðurinn og fótboltasérfræðingurinn Hjörvar Hafliðason er áberandi í allri umræðu hjá miðlum 365 miðla. Þar stýrir hann vinsælum morgunþætti á FM957 og er einn helsti sérfræðingur fyrirtækisins þegar kemur að flaggskipi þess, umfjöllun um fótbolta. Hjörvar á ekki langt að sækja hæfileikann til þess að láta móðann mása í míkrafóninn því einn eigandi Útvarps Sögu, Arnþrúður Karlsdóttir, er náfrænka hans. Móðir Arnþrúðar, María Helga Guðmundsdóttir, átti bróðir sem hét Karl Emil Guðmundsson. Karl er afi Hjörvars.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Ráðherra og afreksfólk

Óhætt er að fullyrða að enginn tengir Jóhönnu Sigurðardóttur við íþróttaafrek. Þó er það svo að tveir afreksíþróttamenn eru náskyldir henni. Systkinin Sigurður Egill og Dóra María Lárusarbörn eru systurbörn Jóhönnu. Móðir þeirra er Hildigunnur Sigurðardóttir. Sigurður Egill hefur verið einn albesti leikmaðurinn í Pepsi-deild karla um nokkra ára skeið. Þá hefur systir hans, Dóra María, verið í hópi bestu leikmanna Íslands um árabil. Hún hefði eflaust gegn lykilhlutverki á Evrópumótinu í Hollandi í sumar ef grátleg meiðsli hefðu ekki komið í veg fyrir það.

Mynd: Skjáskot úr myndbandi KSÍ.

Umdeildar frænkur

Gustað hefur um Ástu Guðrúnu Helgadóttur, þingmann Pírata, undanfarin misseri, en sá orðrómur hefur verið hávær að hún sé búin að mála sig út í horn innan þingflokks Pírata og hugsi sér jafnvel til hreyfings. Hvað sem verður þá á Ásta Guðrún frænku sem er vön því að standa með vindinn í fangið. Það er engin önnur en athafnakonan Jónína Benediktsdóttir. Systir Jónínu, Ingibjörg Sara Benediktsdóttir, er móðir Ástu Guðrúnar.

Mynd: © DV ehf / Sigtryggur Ari

Með leiklistina í blóðinu

Ólafur Arnarson hefur verið í sviðsljósinu undanfarið í kjölfar þess að upp úr sauð milli hans og samherja hans innan stjórnar Neytendasamtakanna. Ólafur er bróðir leikkonunnar Jóhönnu Vigdísar Arnardóttur, sem á dögunum söðlaði um og tók við starfi verkefnastjóra hjá Samtökum iðnaðarins. Þá hefur systir Ólafs og Jóhönnu Vigdísar, lögfræðingurinn Guðrún Sesselja, einnig getið sér gott orð fyrir leiklist en hún lék veigamikið hlutverk í Eiðnum eftir Baltasar Kormák. Systkinin þrjú eru börn Arnar Clausen en tvíburabróðir hans, Haukur, er faðir leikkonunnar Þórunnar E. Clausen.

Hefur staðið í ströngu undanfarið
Ólafur Arnarson Hefur staðið í ströngu undanfarið

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Glúrin á sínu sviði

Ólína K. Þorvarðardóttir var nýlega í helgarviðtali í DV í tilefni þeirra tímamóta að hún er hætt á Alþingi. Hún vinnur nú að sjálfstæðu rannsóknarverkefni sem hún ber vonir til að verði að bók innan tíðar. Fæstir vita að faðir Ólínu, Þorvarður Kjerúlf Þorsteinsson, sýslumaður og bæjarfógeti, er bróðir Jóns Þorsteinssonar, læknis. Jón er faðir fjölmiðlamannsins Eiríks Jónssonar.

Mynd: Mynd DV

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lindakirkju barst dularfullt bréf – „Olli þó smá vangaveltum“

Lindakirkju barst dularfullt bréf – „Olli þó smá vangaveltum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur var sviptur lækningaleyfi en segist einfaldlega hafa tilkynnt símaþjónustu til landlæknis -„Þeir eiga að kunna lögin“

Guðmundur var sviptur lækningaleyfi en segist einfaldlega hafa tilkynnt símaþjónustu til landlæknis -„Þeir eiga að kunna lögin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Spæjarastofan PPP stal líka gögnum frá stórum þrotabúum – „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“

Spæjarastofan PPP stal líka gögnum frá stórum þrotabúum – „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“