fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fréttir

Sviknir við kaup á bílaleigubílum: „Það er ekki ætlunin að hafa neitt af neinum“

Bílarnir voru eknir mun meira en auglýst var

Björn Þorfinnsson
Föstudaginn 29. september 2017 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árið 2010 skipti ALP hf., sem rekur AVIS-bílaleiguna hérlendis, um akstursmæla í 23 jeppum af gerðinni Nissan Patrol. Afleiðingin varð sú að upplýsingar um ekna kílómetra bifreiðanna, sem þá voru tveggja ára gamlir, þurrkuðust út. Fjórum árum síðar seldi ALP hf. bílana áfram með vottorði um að þeir væru í raun meira eknir sem nam um 60–80 þúsund kílómetrum. DV hefur upplýsingar um þrjú tilvik þar sem slíkar bifreiðar voru seldar til sömu innlendu bílasölunnar sem síðan seldi þessar þrjár bifreiðar áfram til annarrar bílaleigu. Um tveimur árum síðar voru þessar bifreiðar seldar áfram til einstaklinga sem fengu ekki upplýsingar um að bifreiðarnar voru mun meira eknar en skráð var.

Keypti köttinn í sekknum

„Ég sá þennan bíl á bílasölu og leist vel á hann. Hann hentaði mér vel og ekki skemmdi fyrir að hann var frekar lítið keyrður,“ segir Guðmundur Bjarnason í samtali við DV. Hann fjárfesti í 2008 árgerð af Nissan Patrol á dögunum en komst síðar að því að hann hefði keypt köttinn í sekknum. Uppgefnir eknir kílómetrar voru 116 þúsund en í raun var bíllinn ekinn um 180 þúsund kílómetra.

„Það var kunningi minn sem gat komist að því fyrir mig að bíllinn var mun meira ekinn en ég fékk upplýsingar um. Hann gat séð að skipt hefði verið um mælaborð í bílunum,“ segir Guðmundur. Hann hafði átt bílinn í fjóra daga og fór strax á bílasöluna þar sem hann gekk frá kaupunum og lét óánægju sína í ljós. „Kaupin voru bakfærð samstundis og mér boðin endurgreiðsla. Ég hef hins vegar ekki viljað taka við henni því í þessa daga sem ég átti bílinn hafði ég eytt rúmlega 300 þúsund krónum í hann og vill fá það bætt,“ segir Guðmundur. Að hans sögn hefði hann aldrei fjárfest í bílnum ef hann hefði vitað hversu mikið hann var ekinn. „Bifreiðin er núna skráð í eigu fyrri eigenda en ég er að fá rukkanir um tryggingariðgjöld af bílnum,“ segir hann.

Eins og áður segir hefur DV upplýsingar um tvo aðra einstaklinga sem lentu í því sama og Guðmundur. Í samtölum við blaðamann staðfesta báðir eigendurnir að þeir hafi ekki verið upplýstir um raunverulegt ástand bifreiðanna. Þeir höfðu fyrst frétt af meintum svikum þegar blaðamaður hafði samband við þá.

Avis breytti 23 bílum

ALP hf. keypti þá eða fékk umráð yfir bílunum þann 19. júní 2008. Tveimur árum síðar var skipt um mælaborð í bifreiðunum þannig að eknir kílómetrar núllstilltust. Í lok árs 2014 voru bílarnir seldir til Stóru bílasölunnar ehf. sem seldi þá áfram til KK9 ehf. nokkrum mánuðum síðar. KK9 ehf. er fyrirtækið sem er á bak við Hasso-bílaleigu og hjólbarðaverkstæðið Bílkó. Rúmum tveimur árum síðar seldi KK9 ehf. síðan bílana án þess að hinir nýju eigendur væru upplýstir um raunverulega sögu þeirra.

Þessa sögu staðfestir Hjálmar Pétursson, framkvæmdastjóri ALP hf., í skriflegu svari til DV. Að hans sögn hefur slíkt aðeins gerst í þetta eina skipti. „Um var að ræða 23 bíla þar sem ákvörðun var tekin um að skipta um mæla í samráði við viðkomandi bílaumboð til að fyrirbyggja vanda vegna mögulegs galla. Upp hafði komið galli sem gerði það að verkum að mælar flöktu talsvert og var því tekin sú ákvörðun hjá ALP að skipta frekar um mælaborð heldur en lenda í því að bílarnir yrðu óútleiguhæfir yfir sumarið,“ segir Hjálmar.

Hann tekur skýrt fram að í öllum tilfellum hafi mælaborðsskiptin verið framkvæmd af viðkomandi bílaumboði til að öruggt væri að þau yrðu skráð í viðhaldssögu bílsins. „Allar upplýsingar um mælaskipti og heildarfjölda ekinna kílómetra voru því skráð samviskusamlega bæði hjá ALP og hjá viðkomandi bílaumboði. Benda má á að hægt er að fá aðgang að þjónustusögu viðkomandi bíla hjá umboðinu, þar sem upplýsingar um mælaskiptin koma fram,“ segir Hjálmar enn fremur.

KK9 ehf. vissi um raunverulega aksturstölu

Hann segir að þegar bílar séu seldir frá ALP sé það gert á tvo máta. „Við seljum annaðhvort beint til einkaaðila eða endursöluaðila. Í öllum tilvikum er þess gætt af hálfu AVIS að upplýsingar um mælaskipti séu skráð í akstursögu viðkomandi bíla og skráðar á afsal ásamt upplýsingum um heildaraksturtölu,“ segir Hjálmar og staðfestir að þetta verklag hafi átt við um þessa bíla sem hér um ræðir. Kaupandi hafi verið upplýstur um sögu bílsins og söluverðið hafi eðlilega miðast við heildaraksturtöluna.

Varðandi bifreiðina sem Guðmundur keypti þá upplýsir Hjálmar að í afsali til Stóru bílasölunnar hafi heildaraksturstalan verið 124.000 kílómetrar. Þá hafi fyrirtækið verið í samskiptum við fyrirtækið og fengið staðfest að þessi heildaraksturstala hafi einnig komið fram í afsali þegar bíllinn var seldur frá Stóru bílasölunni til KK9 ehf. Að endingu segir Hjálmar: „ALP höndlar með mikinn fjölda bíla ár hvert og tekur ábyrgð sína alvarlega við endursölu bílaleigubíla. Því leggjum við mikla áherslu á að upplýsingar varðandi ástand bíla sem seldir eru frá fyrirtækinu séu ætíð réttar og kynntar kaupanda. Sú regla var í hávegum höfð við sölu þessara bíla frá ALP rétt eins og við sölu allra annarra bíla frá fyrirtækinu.“

Ætlar að endurgreiða bílana

„Það er ekki ætlunin að hafa neitt af neinum. Það stendur ekki á mér að taka við bílunum aftur og endurgreiða þá,“ segir Þóroddur Stefánsson, eigandi KK9 ehf., í samtali við DV. Hann tekur fram að hann sé vissulega eigandi fyrirtækisins en að þar til nýlega hafi annar aðili séð um rekstur fyrirtækisins. Hann kannaðist við mál Guðmundar en kom af fjöllum hvað varðar hin málin. Þóroddur segir að fyrirtæki sitt sýsli með gríðarlega marga bíla á hverju ári og erfitt sé að vita sögu allra bílanna.

„Ég frétti af þessu máli og bauð viðkomandi að skila bílnum og fá hann endurgreiddan. Það var margítrekað að óvissa ríkti um raunverulegan akstur bílsins,“ segir Þóroddur og fullyrðir að viðkomandi bílasali hafi vitað af málinu.

Hann staðfestir að Guðmundur hafi óskað eftir því að fjárfesting hans í bílnum verði endurgreidd en telur kröfuna ósanngjarna. „Þetta eru aðallega felgur og dekk sem ég á nóg af. Hann sagðist þá ætla með þetta í blöðin og ég sagði að þá myndi ég bara ræða við blaðamenn,“ segir Þóroddur.

Bílasalarnir höfðu ekki hugmynd

Bílarnir þrír sem KK9 ehf. seldi voru seldir á tveimur bílasölum. Í samtali við DV fullyrða báðir bílasalarnir að þeir hafi ekki haft hugmynd um að bílarnir hafi verið meira keyrðir en mælarnir gáfu til kynna. „Ég mun kalla Þórodd á minn fund ásamt lögfræðingi í fyrramálið og fá það uppáskrifað,“ segir annar þeirra. Þriðji bíllinn var seldur beint til einstaklings af KK9. „Ég hitti ekki einu sinni eiganda bílsins. Kunningi minn benti mér á að þessir bílar væru til sölu. Ég fór og fékk að prófa hann og síðan voru pappírarnir sendir til mín,“ segir núverandi eigandi bílsins. Hann hyggst setja bílinn í ástandsskoðun og síðan taka ákvörðun um hvort að hann óski eftir endurgreiðslu að hluta eða að fullu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lindakirkju barst dularfullt bréf – „Olli þó smá vangaveltum“

Lindakirkju barst dularfullt bréf – „Olli þó smá vangaveltum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur var sviptur lækningaleyfi en segist einfaldlega hafa tilkynnt símaþjónustu til landlæknis -„Þeir eiga að kunna lögin“

Guðmundur var sviptur lækningaleyfi en segist einfaldlega hafa tilkynnt símaþjónustu til landlæknis -„Þeir eiga að kunna lögin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Spæjarastofan PPP stal líka gögnum frá stórum þrotabúum – „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“

Spæjarastofan PPP stal líka gögnum frá stórum þrotabúum – „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“