fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fréttir

Steinunn Ólína hjólar í Kolbrúnu saksóknara: „Uppveðruð vegna nýfenginnar frægðar brjóstaskoru sinnar“

Hjálmar Friðriksson
Fimmtudaginn 24. ágúst 2017 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona og ritstjóri Kvennablaðsins, gagnrýnir Kolbrúnu Benediktsdóttur harðlega í pistli sem birtist í Kvennablaðinu. Steinunn segir að Kolbrún hafi misst sjónir á ábyrgð sinni í viðkvæmu sakamáli með því að grínast með brjóstaskoru sína. Líkt og hefur komið fram birti Eiríkur Jónsson grein á vef sínum þar sem sagt var að fleginn bolur Kolbrúnar væri ekki við hæfi.

Steinunn hefur pistill sinn á því að segjast vera algjörlega ósammála Eiríki, sem sagðist síðar vera þeirrar skoðunar að saksóknarar megi vera eins frjálslega klæddir og þeir vilja. Hann fullyrti að greinin hafi einungis verið lesendabréf en ekki hans eigin skoðun.

„Fólk sem vinnur embættisstörf þar sem hlutleysis er krafist á að gæta þess í hvívetna að persóna þeirra verði sem ósýnilegust. Það er ekki ósjaldan að góðir embættismenn eru út á við fölleit grámenni sem fáir vita hvaða menn hafa að geyma. Lögmenn sem starfa innan dómsala hafa verið ávíttir fyrir að bera ekki hálstau þar sem klæðaburður þeirra á að undirstrika virðingu fyrir dómstólum og skjólstæðingum þeirra,” skrifar Steinunn Ólína.

Hún segir hempan eða skikkjan sem lögmenn klæðast tákni hlutleysi. „Hempan beinlínis táknar hlutleysi og á að afpersónugera þann einstakling sem henni klæðist. Gamaldags kannski en er það ekki einmitt nauðsynlegt í starfi saksóknara? Embættismenn sem klæðast flegnum stuttum kjólum eða nærbol og stuttbuxum undir flaxandi hempunni draga óneitanlega athyglina frá störfum sem þau gegna og að þeim sjálfum. Það er ekkert flókið,“ skrifar Steinunn Ólína.

Steinunn Ólína telur að það hafi ekki verið við hæfi hjá Kolbrúnu að slá á létta strengi í athugasemd hjá Líf Magneudóttur. „Saksóknarinn Kolbrún Benediktsdóttir gaf sér ráðrúm í nokkurra mínútna pásu í sjálfum réttarhöldunum til að gantast með óvænta „aðalpersónu“ réttarhaldanna – hana sjálfa – við vinkonu sína á Facebookþræði og m.a leiðrétta að hún hafi ekki klæðst bol heldur kjól og meira að segja dálítið stuttum og lét með fylgja brosandi smápatta. Var það virkilega við þetta sem hugur hennar dvaldi? Athygli sem greinarstúfur beindi að brjóstum hennar? Brjóstaskoruna sem konur landsins kepptust við að sýna í tilefni af þeirri kvenhatandi og ósanngjörnu gagnrýni sem þær töldu Kolbrúnu hafa orðið fyrir,“ skrifar Steinunn Ólína.

Sjá einnig: „Barmageddon“ vindur upp á sig: „Þetta er reyndar kjóll og dáldið stuttur í þokkabót“

Hún segir þetta hafi ekki verið staður né stund fyrir slíkt. „Kolbrún, vertu starfi þínu vaxin þrátt fyrir að einhverjar konur landsins gangi af göflunum. Kolbrún missir sjónar á ábyrgð sinni í viðkvæmasta sakamáli vorra daga, uppveðruð vegna nýfenginnar frægðar brjóstaskoru sinnar og deilir einnig á Facebook ljósmynd af sér með texta á þá leið að brjóstin á henni séu á leið til Finnlands.

„Who cares? Eru þau í embættiserindum? Þjóðin hefur nú um stundir aðeins áhuga á því að þetta hræðilega mál fái eðlilega málsmeðferð í höndum verðugra embættismanna og verði hlutaðeigendum ekki sársaukafyllra en orðið er. Hér er ekki staður eða stund fyrir senuþjófa eða skrípalæti,“ skrifar Steinunn Ólína.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lindakirkju barst dularfullt bréf – „Olli þó smá vangaveltum“

Lindakirkju barst dularfullt bréf – „Olli þó smá vangaveltum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur var sviptur lækningaleyfi en segist einfaldlega hafa tilkynnt símaþjónustu til landlæknis -„Þeir eiga að kunna lögin“

Guðmundur var sviptur lækningaleyfi en segist einfaldlega hafa tilkynnt símaþjónustu til landlæknis -„Þeir eiga að kunna lögin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Spæjarastofan PPP stal líka gögnum frá stórum þrotabúum – „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“

Spæjarastofan PPP stal líka gögnum frá stórum þrotabúum – „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“