fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fréttir

Davíð Oddsson: „Ég er ekki lengur djammari“

Davíð segir vín ekki lengur neitt atriði fyrir sig

Ritstjórn DV
Laugardaginn 14. maí 2016 12:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ekki lengur, en ég er kvöldsins maður. Ég er ekki lengur djammari. Ég held mig heima en ég hlusta á músík fyrir mig en það er allt dálítið gamalt,“ sagði Davíð Oddsson, forsetaframbjóðandi, aðspurður hvort hann væri djammari.

Davíð svaraði spurningum Loga Bergmanns og Rúnars Freys í Bakaríinu á Bylgjunni í morgun, þar sem hann upplýsti meðal annars að hann spilar bridds í gegnum netið, á erfitt með að vakna á morgnana og pantar pítsu með pepperoni og auka osti. Þá var hann spurður um djammið, meðal annars hvort hann hafi getað djammað þegar hann var borgarstjóri. Hann kvað svo hafa verið.

„Ég fór svona út. Það birtist einhvern tíma mynd af mér í norsku blaði þegar það voru eitthvað 10 þúsund unglingar í miðbænum og þeir voru að taka mynd af því. Allt í einu rákust þeir á borgarstjórann þar í hópnum, einan með vindil. Einstaka sinnum fékk ég mér vindil, ég er löngu hættur því. Þeim fannst það skrítið að það var hægt. En ég var náttúrlega bara 34 ára þegar ég varð borgarstjóri þannig að ég var ekkert mikið eldri en hinir þarna.“

Logi spurði Davíð hvort hann væri fullur núna og ekki stóð á svarinu:

„Ekki mjög.“

Davíð segist hafa minnkað áfengisneyslu sína á undanförnum árum. Ekki vegna þess að það sé einhver hvatning til þess, heldur hafi það bara þróast þannig.

„Ég var til dæmis fyrir það að fá mér sterk vín hérna í gamla daga, jafnvel koníak og allt þetta með kaffi eftir mat og svona. Ef ég geri það núna, kaffi og koníak, þá sef ég ekki. Þetta er nú bara þannig. Ég talaði af töluverðri fyrirlitningu þegar ég var í borgarstjóraembætti og svona um menn sem voru að súpa rauðvín og hvítvín og þetta, tala nú ekki um sérrí. Mér fannst þetta vera alveg dæmalaus misnotkun á tækifærunum. En svo er þetta allt breytt og er farinn að gera þeta sjálfur, finnst gott að fá mér eitt rauðvínsglas með konunni og svona. En vín er ekki lengur neitt atriði fyrir mig.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lindakirkju barst dularfullt bréf – „Olli þó smá vangaveltum“

Lindakirkju barst dularfullt bréf – „Olli þó smá vangaveltum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur var sviptur lækningaleyfi en segist einfaldlega hafa tilkynnt símaþjónustu til landlæknis -„Þeir eiga að kunna lögin“

Guðmundur var sviptur lækningaleyfi en segist einfaldlega hafa tilkynnt símaþjónustu til landlæknis -„Þeir eiga að kunna lögin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Spæjarastofan PPP stal líka gögnum frá stórum þrotabúum – „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“

Spæjarastofan PPP stal líka gögnum frá stórum þrotabúum – „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“