fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fréttir

Gunnar Eyjólfsson látinn

Auður Ösp
Mánudaginn 21. nóvember 2016 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Eyjólfsson, einn ástsælasti leikari þjóðarinnar er látinn, níræður að aldri. Frá þessu greinir RÚV. Gunnar lék fjölda eftirminnilegra hlutverka á ferli sínum, bæði á leiksviði og í kvikmyndum og hlaut einnig fjölda verðlauna fyrir starf sitt í þágu leiklistarinnar.

Fram kemur á vef Þjóðleikhússins að Gunnar þreytti frumraun sína á leiksviði í sýningu Leikfélags Reykjavíkur á Kaupmanni í Feneyjum árið 1945. Hann stundaði nám við Royal Academy of Dramatic Art í Lundúnum 1945-47 og lék um skeið í Stratford og Lundúnum. Sviðshlutverk Gunnars eru vel á annað hundrað og flest í Þjóðleikhúsinu en þar var
Gunnar fastráðinn leikari frá árinu 1961 og lék þar fjölda burðarhlutverka.

Þá lék Gunnar í fjölda kvikmynda, sjónvarpsmynda og útvarpsleikrita, meðal annars í Milli fjalls og fjöru, 79 af stöðinni, Atómstöðinni, Hafinu, Mömmu Gógó, Lénharði fógeta og Paradísarheimt.

Gunnar stofnaði Talskólann í Reykjavík árið 1983 og var einnig kennari við Leiklistarskóla Þjóðleikhússins, við HÍ, KHÍ og FB. Hann sat lengi í þjóðleikhúsráði og í menntamálaráði í rúman áratug. Þá var hann skátahöfðingi Íslands á árunum 1987-95.

Gunnar hlaut fjölda verðlauna á ferli sínum en hann vann til Edduverðlaunanna fyrir leik sinn í kvikmyndinni Hafinu og þá hlaut hann heiðursverðlaun Grímunnar árið 2013 fyrir ævistarf sitt í þágu sviðslistar á Íslandi.Hann hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf sín árið 1999. Hann hlaut Stefaníustjakann fyrir störf sín að leiklist árið 2006.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mohamad Kourani varð kveikjan að nýju frumvarpi

Mohamad Kourani varð kveikjan að nýju frumvarpi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Degi úthýst af Mogganum

Degi úthýst af Mogganum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Opnar sig um vinslitin við Þorstein Má: „Peningar eru ekki allt í lífinu“

Opnar sig um vinslitin við Þorstein Má: „Peningar eru ekki allt í lífinu“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Áslaug svarar fyrir fréttaflutning um laun hennar og framtíðaráform – „Mér er ljúft og skylt að bregðast við“

Áslaug svarar fyrir fréttaflutning um laun hennar og framtíðaráform – „Mér er ljúft og skylt að bregðast við“