fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fréttir

Skaut dæturnar á afmælisdegi eiginmannsins

Christy Sheats, 42 ára, myrti dætur sínar áður en hún var skotin af lögreglu

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 27. júní 2016 16:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við erum enn að reyna að púsla þessari atburðarás saman,“ segir Troy Nehls, lögreglustjóri í Fort Bend-sýslu í Texas í Bandaríkjunum, um óhugnanlegt atvik sem varð á föstudag þegar Christy Sheats, 42 ára kona, skaut tvær dætur sínar, 22 ára og 17 ára, til bana.

Christy var skotin til bana af lögreglu eftir að hafa framið voðaverkið. Morðin framdi hún á afmælisdegi eiginmanns síns og föður stúlknanna tveggja.

Að því er People greinir frá hafði Christy átt við geðræn vandamál að stríða og hafði lögregla haft afskipti af henni áður. Nágranni hjónanna segir að þau hafi verið nýlega tekið saman aftur eftir að hafa skilið að borði og sæng um tíma.

Það var nágranni sem hringdi á lögreglu þegar hún heyrði skothvelli. Þegar lögregla mætti á vettvang er Chisty sögð hafa neitað að leggja skotvopnið frá sér með þeim afleiðingum að hún var skotin til bana. Önnur dóttirin er talin hafa látist samstundis, eða því sem næst, en hin lést á sjúkrahúsi á föstudag.

Lögreglan rannsakar málið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lindakirkju barst dularfullt bréf – „Olli þó smá vangaveltum“

Lindakirkju barst dularfullt bréf – „Olli þó smá vangaveltum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur var sviptur lækningaleyfi en segist einfaldlega hafa tilkynnt símaþjónustu til landlæknis -„Þeir eiga að kunna lögin“

Guðmundur var sviptur lækningaleyfi en segist einfaldlega hafa tilkynnt símaþjónustu til landlæknis -„Þeir eiga að kunna lögin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Spæjarastofan PPP stal líka gögnum frá stórum þrotabúum – „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“

Spæjarastofan PPP stal líka gögnum frá stórum þrotabúum – „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“