fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fréttir

Þetta eru 10 bestu veitingastaðirnir í Reykjavík

Notendur Tripadvisor gefa stöðunum í Reykjavík einkunn – Umsögn gesta skiptir veitingahús miklu máli

Björn Þorfinnsson
Þriðjudaginn 26. apríl 2016 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veitingastaðurinn Friðrik V er besti veitingastaðurinn á höfuðborgarsvæðinu að mati notenda Tripadvisor. Í nýliðinni viku tilkynntu eigendur veitingastaðarins, hjónin Friðrik Valur Karlsson og Arnrún Magnúsdóttir, að þau hygðust loka staðnum þann 1. júní næstkomandi vegna alvarlegra veikinda Arnrúnar. „Við erum tvö að reka staðinn og þegar það vant­ar ann­an helm­ing­inn verður hinn að hlaupa helm­ingi hraðar – og get­ur þá ekki sinnt mak­an­um á meðan,“ sagði Friðrik þegar hann greindi fyrst frá fyrirhugaðri lokun staðarins. Í ljósi stöðunnar á Tripadvisor má svo sannarlega segja að þau hjónin komi til með að hætta á toppnum.

DV birti sams konar lista á svipuðum tíma í fyrra og athyglisvert er að bera listana saman frá ári til árs. Óhætt er að segja að breytingarnar hafi verið miklar, nokkrir veitingastaðir ná að halda sínum sessi á listanum á milli ára en aðrir koma sterkir inn, jafnvel veitingastaðir sem hafa verið til í dágóðan tíma. Taka ber fram að úttekt DV miðast við stöðu listans þann 25. apríl.

Á vefsíðunni Tripadvisor geta ferðamenn og aðrir sagt skoðanir sínar á þeirri þjónustu sem þeir fá á ferðalögum. Þar er hægt að gefa hótelum, flugfélögum og veitingastöðum einkunnir og þeir allra hörðustu skrifa vandaðar umsagnir um staðina sem voru heimsóttir. Það er óhætt að segja að vefsíðan sé ein vinsælasta sinnar tegundar og há einkunn skiptir miklu máli fyrir veitingastaði þegar kemur að vinsældum. Sérstaklega á það við um veitingastaði sem eru kannski ekki í alfaraleið ferðamanna.

Það sem vekur óneitanlega athygli er sú staðreynd að litlir fjölskyldureknir staðir sem leggja upp úr afar persónulegri þjónustu skora langhæst hjá notendum Tripadvisor. Friðrik V og Restó, staðirnir sem tróna á toppnum, eru báðir frekar litlir staðir, reknir af hjónum. Eigendurnir eru allt í öllu í hinum daglega rekstri. Það hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir íslenska veitingamenn.

Tíu bestu staðirnir samkvæmt Tripadvisor, 25. apríl 2016:

Áhersla veitingastaðarins á íslenskt hráefni sem og persónuleg þjónusta virðist hitta í mark hjá viðskiptavinum
1. Friðrik V Áhersla veitingastaðarins á íslenskt hráefni sem og persónuleg þjónusta virðist hitta í mark hjá viðskiptavinum

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

1. Friðrik V

Laugavegur 60
584 umsagnir

Umsagnir samandregnar

Það er augljóst að aðstandendur Friðriks V eru að gera eitthvað rétt. Gestir fara í umsögnum sínum lofsamlegum orðum um matinn og þjónustuna. Sérstaklega virðast gestir hrifnir af áherslu eigenda á innlent hráefni. Þá virðist falla í kramið sú hefð að benda gestum á hvar á landinu hráefnið fékkst. Einn gestur segist hafa heimsótt fjölmarga Michelin-staði um allan heim og að hans mati sé Friðrik V í efstu þremur sætunum yfir bestu veitingastaði sem hann hefur heimsótt. En það er kalt á toppnum og eina slæma gagnrýnin sem blaðamaður rakst á var að væntingar gesta hefðu verið orðnar svo háar að staðnum hefði ekki tekist að uppfylla þær fyllilega!


Hefur verið við toppinn frá opnun staðarins.
2. Restó Hefur verið við toppinn frá opnun staðarins.

2. Restó

Rauðarárstígur 27–29
444 umsagnir

Umsagnir samandregnar

Restó, sem þá hafði aðeins nýlega opnað, skipaði efsta sæti í sambærilegri úttekt DV í fyrra. Þar ráða hjónin Jóhann Helgi Jóhannesson og Ragnheiður Helen Eðvarðsdóttir ríkjum og hafa frá opnun slegið í gegn hjá innlendum sem erlendum gestum. Staða Restó í öðru sæti listans sýnir að árangurinn í fyrra byggðist ekki á því að um nýjan og ferskan stað væri að ræða. Nýjabrumið er farið en ennþá er Restó við toppinn. Fyrir utan almenna ánægju með matinn, þá aðallega sjávarfangið, þá virðast margir hrifnir af því hversu lítill og notalegur staðurinn er. Þá er þjónustan sögð laus við alla tilgerð en að sama skapi einkar hlýleg og persónuleg. Einnig er minnst á að skammtastærðin sé til eftirbreytni. Einn gestur gagnrýnir dýpt stólanna og þá rak blaðamaður augun í að minnsta kosti tvær tilvísanir um að væntingar gesta, út af hárri einkunn staðarins á Tripadvisor, hafi einfaldlega verið of miklar.


Fyrir tæpu ári fékk staðurinn vínveitingaleyfi og opnaði endurbætt húsnæði. Síðan þá hefur leiðin legið uppá við.
3. Ostabúðin Fyrir tæpu ári fékk staðurinn vínveitingaleyfi og opnaði endurbætt húsnæði. Síðan þá hefur leiðin legið uppá við.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

3. Ostabúðin

Skólavörðustígur 8
494 umsagnir

Umsagnir samandregnar:

Ostabúðin opnaði stærri og endurbættari stað í júní síðastliðinn. Má segja að staðurinn hafi komist í fullorðinna tölu því nýi staðurinn skartaði vínveitingaleyfi og lengri opnunartíma, þá er ekki hægt að panta borð á kvöldin sem er önnur stefna en flestir veitingastaðir í miðbænum reka. Óhætt er að álykta að eigendurnir séu að gera eitthvað rétt því umsagnirnar eru lofsamlegar. Maturinn er sagður frábær og andrúmsloftið óþvingað og þægilegt. Þá hrósa fjölmargir verðlaginu á réttum staðarins. Eina neikvæða gagnrýnin á staðinn sem heitið getur er sú að matseðill staðarins sé ekki stór og þá skrifaði einn harðorða gagnrýni um að maturinn hefði verið alltof saltur. Síðar í skeytinu tók viðkomandi hins vegar fram að hann/hún hefði pantað saltfisk.


Frumlegar útfærslur á sígildum íslenskum réttum hitta í mark
4. Matur og drykkur Frumlegar útfærslur á sígildum íslenskum réttum hitta í mark

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

4. Matur og drykkur

Grandagarður 2
268 umsagnir

Umsagnir samandregnar

Matur og drykkur var opnað í janúar á síðasta ári og hefur vaxið jafnt og þétt síðan. Erlendir gestir eru yfir sig hrifnir af skemmtilegum útgáfum af klassískum íslenskum mat, til dæmis harðfisksflögum, skyri, kleinum og að sjálfsögðu lambalæri. Þá er þjónustan sögð óformleg og skemmtileg sem virðist hitta í mark. Sumir gestir nefna að einhverjir réttir séu aðeins of framúrstefnulegir fyrir þeirra smekk.


Einn viðskiptavinur hafði á orði að fiskurinn á staðnum væri „alvarlega ferskur“.
5. Fiskmarkaðurinn Einn viðskiptavinur hafði á orði að fiskurinn á staðnum væri „alvarlega ferskur“.

5. Fiskmarkaðurinn

Aðalstræti 12
2.014 umsagnir

Umsagnir samandregnar

„Alvarlega ferskur fiskur,“ segir einn gestur og virðist meina það. Maturinn á Fiskmarkaðnum, sem hefur lengi verið í fremstu röð veitingastaða hérlendis, fær afar góða dóma. Sérstaklega er smakk-matseðlinum hrósað. Þá eru gestir ánægðir með útlit staðarins og segja staðinn vera töff. Helst er það verðið sem fer fyrir brjóstið á gestum sem og að réttirnir þykja lengi að berast úr eldhúsinu.


Eigandi staðarins er duglegur í samskiptum við gesti á Tripadvisor. Prik fyrir það.
6. Old Iceland Restaurant Eigandi staðarins er duglegur í samskiptum við gesti á Tripadvisor. Prik fyrir það.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

6. Old Iceland Restaurant

Laugavegur 72
731 umsögn

Umsagnir samandregnar

Flestir lýsa staðnum sem litlum og notalegum, þar af leiðandi er erfitt að fá borð án þess að panta fyrirfram. Andrúmsloftið er sagt afslappað og laust við alla tilgerð. Þá er þjónustufólkið sagt vinalegt, hjálplegt og hafa góða þekkingu á því sem boðið er upp á. Maturinn er að sjálfsögðu í forgrunni hjá þeim sem skrifa umsögn um staðinn og eru gestir nánast á einu máli um að hann sé frábær. Þá vekur athygli að Halldór, eigandi staðarins, leggur það á sig að svara öllum gagnrýnendum. Blaðamaður þurfti að leita lengi að dóm þar sem gestur var óánægður með matinn og þá tók eigandinn því af mikilli auðmýkt og baðst innilegrar afsökunar. PR-starf til mikillar fyrirmyndar.


Frábærir fiskréttir og gestir frá öllum heimshornum.
7. Sjávargrillið Frábærir fiskréttir og gestir frá öllum heimshornum.

7. Sjávargrillið

Skólavörðustígur 45
2.107 umsagnir

Umsagnir samandregnar

Sjávarréttunum er hrósað í hástert á staðnum enda í forgrunni matseðilsins. Hins vegar fá aðrir réttir einnig sinn skerf af lofi. Andrúmsloftið á staðnum er sagt frábært og gestirnir frá öllum heimshornum. Þá er staðurinn sagður vel skipulagður, hann taki á móti mörgum gestum en hávaðinn sé aldrei mikill. Almennt fær starfsfólk hrós fyrir þægilegt viðmót og liðlegheit en þó hafa sumir á orði að það mætti brosa meira og vera líflegra. Þá heimsótti einn gestur staðinn með tveggja ára millibili og sagði staðnum hafa farið mikið fram.


Eini staðurinn á listanum sem er ekki opinn á kvöldin.
8. Kaffivagninn Eini staðurinn á listanum sem er ekki opinn á kvöldin.

8. Kaffivagninn

Grandagarður 10
203 umsagnir

Umsagnir samandregnar

Kaffivagninn nýtur talsverðrar sérstöðu á listanum því veitingastaðurinn er aðeins opinn til kl. 18.00 hvern dag. Áhersla staðarins er því á morgunmat, hádegisverð og kaffiveitingar. Gestir virðast hrifnastir af umhverfi staðarins við höfnina og þeirri staðreynd að staðinn sækir mikið af heimamönnunum. Þá þykir maturinn afar góður og verðið þykir lágt samanborið við aðra veitingastaði.


Forréttirnir, sem koma í tveimur stærðum, þykja hreint afbragð.
9. Forréttabarinn Forréttirnir, sem koma í tveimur stærðum, þykja hreint afbragð.

9. Forréttabarinn

Nýlendugata 14
479 umsagnir

Umsagnir samandregnar:

Eins og nafnið gefur til kynna þá einbeitir staðurinn sér að forréttum í tveimur stærðum auk þess sem hægt er að panta fjögurra rétta matseðil. Maturinn fær mikið lof og greinilegt að hugmyndafræði staðarins hittir í mark. Gestir taka fram að verðið sé hagstætt en þó er einnig minnst á hið gagnstæða. Þá er andrúmsloftið sagt frábært sem og þjónustan sem er sögð vinaleg. Margir gestir minnast á „happy hour“ staðarins og eru ánægðir með að hægt sé að taka fordrykk á því hagstæða verði fyrir matinn. Eina „neikvæða“ gagnrýnin sem blaðamaður fann var að erfitt væri að lesa af matseðlinum vegna lýsingarinnar!


Matseðlarnir Ferðalag um Ísland og Heimsreisa njóta mikilla vinsælda.
10. Fiskfélagið Matseðlarnir Ferðalag um Ísland og Heimsreisa njóta mikilla vinsælda.

10. Fiskfélagið

Vesturgata 2a
213 umsagnir

Umsagnir samandregnar

Matseðlarnir á Fiskfélaginu njóta greinilega mikilla vinsælda, Ferðalag um Ísland og Heimsreisa. Matnum er hrósað í hástert, hann þykir góður og að sama skapi spennandi. Margir virðast taka vín með hverjum rétti á matseðlinum og er staðnum hrósað fyrir ríkulegt magn sem viðskiptavinum er skenkt. Þá er þjónustan sögð fagmannleg en að sama skapi hlý og vinaleg. Innréttingar veitingastaðarins þykja afar flottar og andrúmsloftið töff. Mikið sé að gera á staðnum og kvartaði einn viðskiptavinur yfir því að hann hefði ekki haft næði til þess að njóta matarins, réttirnir kæmu of hratt.

Topp 10 í maí 2015

Kol Restaurant og Kjallarinn – Kitchen bar hrynja niður listann

Hér má sjá 10 efstu sætin hjá Tripadvisor í maí 2015. Í sviga er staðan í dag.

  1. Restó (2)
  2. Fiskmarkaðurinn (5)
  3. Friðrik V (1)
  4. Sjávargrillið (7)
  5. Grillmarkaðurinn (11)
  6. Forréttabarinn (9)
  7. Fiskfélagið (10)
  8. Kol Restaurant (22)
  9. Kjallarinn – Kitchen bar (26)
  10. Old Iceland Restaurant (6)
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lindakirkju barst dularfullt bréf – „Olli þó smá vangaveltum“

Lindakirkju barst dularfullt bréf – „Olli þó smá vangaveltum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur var sviptur lækningaleyfi en segist einfaldlega hafa tilkynnt símaþjónustu til landlæknis -„Þeir eiga að kunna lögin“

Guðmundur var sviptur lækningaleyfi en segist einfaldlega hafa tilkynnt símaþjónustu til landlæknis -„Þeir eiga að kunna lögin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Spæjarastofan PPP stal líka gögnum frá stórum þrotabúum – „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“

Spæjarastofan PPP stal líka gögnum frá stórum þrotabúum – „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“