Segist aldrei hafa átt félög á aflandseyjum eða í skattaskjólum
Eyjan greinir frá því að Sigurmar K. Albertsson, eiginmaður Álfheiðar Ingadóttur, fyrrverandi heilbrigðisráðherra neiti því að hafa átt félög sem tengist aflandseyjum. Hann segir Morgunblaðið vera að reyna að koma höggi á Álfheiði, eiginkonu sína.
Í samtali við Eyjuna greinir hann frá því að hann hafi aldrei haft aðkomu að félögum á aflandseyjum eða í skattaskjólum í samtali við Eyjuna. Morgunblaðið sagði frá því í morgun að Sigurmar hafi stofnað félagið Sýrey og verið í forsvari fyrir félagið. Að sögn Eyjunnar hafnar hann því alfarið að tengjast félaginu.
Sjá einnig: Eiginmaður Álfheiðar Ingadóttur sagður í gögnum Mossack Fonseca
Sigurmar segir við Eyjuna að hann hafi á þessum tíma unnið fyrir Kaupþing. Hann segir Sýrey hafa verið eitt þeirra félaga sem stofnað hafi verið við þá vinnu. Félagið segir hann hafa verið stofnað í kringum skuldaskil vegna lands í Borgarfirði.
„Ég sá um þau skuldaskil og stofnaði þetta félag,“ segir Sigurmar við Eyjuna. Hann segist hafa setið í stjórn Sýreyjar í sex eða sjö mánuði ásamt Eggert Hilmarssyni, Kaupþingsmanni. Sigurmar segist hafa sagt sig úr stjórn Sýreyjar, þann 10. febrúar 2006, því þá hafi verið búið að afgreiða skuldaskilin.
Líkt og DV greindi frá fyrr í dag, birti Morgunblaðið í morgun frétt þess efnis að eiginmaður fyrrverandi heilbrigðisráðherra hafi átt félag á Tortóla. Í samtali við Eyjuna segir Sigurmar að það sé bull og að félagið hafi verið skráð á Íslandi.
Að sögn Sigurmars segir hann það ekki koma sér á óvart að Morgunblaðið hafi ekki haft samband við sig og aldrei hafi verið reynt að hafa uppi á honum við vinnslu fréttarinnar.