Skráður fyrir félagi á Tortóla að sögn mbl.is
Mbl.is greinir frá því að félag eiginmanns Álfheiðar Ingadóttur, fyrrverandi alþingiskonu sé á lista hjá Mossack Fonseca sem tengist Panamaskjölunum.
Eiginmaður Álfheiðar, Sigurmar K. Albertsson, hæstaréttarlögmaður stofnaði félagið Sýrey. Á vef mbl.is kemur fram að Sýrey sé í eigu Holt Investment Group Ltd. Mbl.is segir að félagið Holt Investment Group hafi haft aðsetur í Akara-byggingunni á Tortóla. Sömuleiðis segir að fylgiskjal hafi verið undirritað af fulltrúa Fonseca.
Sigurmar er sagður vera hafa verið forsvarsmaður Sýreyjar þegar félagið var skráð á Tortóla. Morgunblaðið segir einnig að prókúra hans hafi verið afturkölluð 8. mars 2006. Félagið Holts Holding S.A. er skráð í fyrirtækjaskrá í Lúxemborg. Í frétt mbl.is segir að Holts Holding S.A. hafi verið í eigu Holt Investment Group, sem skráð er á Bresku jómfrúaeyjunum.
Álfheiður sat á Alþingi fyrir Vinstri græna á árunum 2007-2013 og heilbrigðisráðherra á árunum 2009-2010.
Fréttin birtist fyrst í viðskiptablaði Morgunblaðsins
Uppfært kl. 10:21: Ekki hefur náðst í Sigurmar vegna málsins.