fbpx
Miðvikudagur 01.maí 2024

Agnes vill sjá breytingar: „Stjórnvöld viljiði gjöra svo vel að girða upp brók – hvað viljiði hafa mörg glötuð líf á ykkar höndum?“

Vynir.is
Föstudaginn 1. febrúar 2019 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var laugardagur, 19. janúar og klukkan að ganga miðnætti. Það var búið að snjóa meira en hefur sést hér í Reykjanesbæ í allan vetur og umferðarvegir ekki í sínu besta ástandi. Ég var á leiðinni í vinnuna. Ég var að byrja í nýrri vinnu sem er í Hafnarfirði. Ég bý í Keflavík svo ég þarf að keyra Reykjanesbrautina til að fara í vinnuna. Brautin var í slæmu ástandi og ekki búið að salta/skafa. Mikið slabb, snjór og hálka. Ekki var hægt að keyra ofan ì djúpu hjólförunum sem einkenna Reykjanesbrautina á köflum. Sem gerði það að verkum að ökumenn þurftu á köflum að vera aðeins inn á vinstri akrein til að minnka áhættu á að lenda ofan í slabbinu og fara út af.

Ég í sakleysi mínu hélt að ökumenn væru almennt að fara varlega í svona aðstæðum, en svo er greinilega ekki. Þegar ég var að keyra fram hjá Vogunum var bíll sem tók fram úr mér á allavega 110-120 km hraða, ég fékk sjokk og bað fyrir að lenda ekki með helvítis fantinn í hliðinni á mér og fara út af. Ekki var þetta öll sagan. Aðeins um 5 mín seinna var vegurinn mjög slæmur og ég aðeins inn á vinstri akrein til að lenda ekki í slabbinu. Þá kemur í alvörunni RÚTA full af fólki og brunar fram úr mér, sem varð til þess að ég þurfti að fara ofan í djúpu förin og í allt slabbið, það tók smá tíma að mana mig í það og þá var rútan farin að flauta á mig! Í ALVÖRU HVAÐ ER AÐ! Það segir sig sjálft að þegar aðstæður eru á þennan veg þá á fólk að fara varlega og keyra hægar. Ég var að keyra á 70-80 km hraða sem var bara fínn hraði því það voru nokkrir bílar fyrir aftan mig sem héldu sér á sama hraða og ég og voru ekki að taka fram úr.

Mér finnst þetta svo mikil óvirðing, okey ef fólk vill keyra eins og fífl þá má það bara gera það einhvers staðar staðar þar sem enginn er nálægt uppi í sveit eða eitthvað. Ef fólk er í bílveltu/bílslysa hugleiðingum má það líka bara vera einhvers staðar staðar þar sem annað fólk er ekki að keyra sem þykir vænt um líf sitt.

Nei en svona í alvöru talað hvað er það sem fær fólk til að þurfa að flýta sér svo mikið að það er ekki einu sinni að hugsa um slysahættuna sem það gæti verið að valda. Það skiptir mig allavega engu máli þó ég sé 5-10 mín lengur að keyra á áfangastað, ef ég er öruggari við það.

Nú hef ég ekki áður þurft að keyra Reykjanesbrautina jafn oft á stuttum tíma. En í þau skipti sem ég hef verið að keyra í „bæinn“ hef ég nánast undantekningarlaust orðið eitthvað hrædd/smeyk á leiðinni þegar ég er stödd á Reykjanesbrautinni. Ekki bara í hálku, líka á góðum sumardögum. Af hverju spyr fólk sig kannski, það eru nokkrar ástæður fyrir því.

Það eru fjórir hlutir sem er ég hræðist á Reykjanesbrautinni

Fyrsta lagi: Vegirnir. Það er á köflum mjög slitin Reykjanesbrautin, hjólför orðin allt allt of djúp og er mjög varasamt þegar það er úrkoma.

Öðru lagi: Einbreiði kaflinn á Reykjanesbrautinni, þegar maður er að koma í Hafnarfjörð. Mér finnst alveg merkilegt að ekki sé enn búið að tvöfalda alla brautina, það hafa orðið mörg slys og þetta er bara hræðilegt. Þegar að ég keyri þennan kafla af brautinni, er ég alltaf með hjartað í buxunum. Bíð eftir að fá bíl á móti mér á mig. Það þarf ekki nema nokkur sekúndubrot þar sem ökumaður er ekki með athygli við aksturinn og BÚMM þú færð bíl beint framan í þig og átt ekki miklar lífslíkur eftir það.

Þriðja lagi: Bílaleigubílar (túristar). Þeir eru stór hættulegir oft á tíðum sveiflandi sér á milli akreina þegar hentar og eru ekkert að gefa manni tíma í að meta aðstæður og hægja á sér ef þess er þörf. Ekki er óalgengt að þeir keyri annað hvort allt of hratt eða allt of hægt sem getur líka verið hættulegt. Það er einfaldlega eins og margir túristar hafa fengið bílprófið sitt í cheerios pakka.

Fjórða lagi: Náttblinda, Þegar það er mikil úrkoma og dimmt úti er hættulegt að keyra Reykjanesbrautina á leiðinni í Reykjavík ef maður sér illa í myrkri. Af hverju spyrja kannski sumir sig. Jú vegna þess að af einhverri ástæðu, sem mér finnst óskiljanleg, eru bara ljósastaurar öðru megin á brautinni. Steikt ég veit.

Stjórnvöld viljiði gjöra svo vel að girða upp brók. Þetta er ekki í lagi, það verður að klára tvöföldunina á Reykjanesbrautinni. Það er ekki í boði að gera það á 15 árum, eins og fram hefur komið.
Þetta þarf að gerast strax. HVAÐ þurfa margir að deyja áður en það er gert eitthvað, hvað viljiði hafa mörg glötuð líf á ykkar höndum?

Það sem er mikilvægt að gera á meðan aðstæður eru ekki eins og þær eiga að vera, er að fólk sýni tillit og fari varlega á Reykjanesbrautinni. Það vill engin hafa glatað líf í sínum höndum.

Þú átt bara eitt líf.
Ég á bara eitt líf.
Förum varlega.

Færslan er skrifuð af Agnesi og birtist upphaflega á Vynir.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Sigmundur Davíð fokvondur yfir nýjum hurðarhún í Alþingishúsinu – „Nútíminn er trunta”

Sigmundur Davíð fokvondur yfir nýjum hurðarhún í Alþingishúsinu – „Nútíminn er trunta”
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ratcliffe telur þessa tvo leikmenn United á alltof háum launum og vill þá burt

Ratcliffe telur þessa tvo leikmenn United á alltof háum launum og vill þá burt
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

301 mínúta frá því að Valur skoraði síðast úr opnum leik

301 mínúta frá því að Valur skoraði síðast úr opnum leik
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Vægur dómur fyrir ofbeldi í nánu sambandi

Vægur dómur fyrir ofbeldi í nánu sambandi
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Einlægur Brynjar ræðir tilfinningnaþrungna tíma í Grindavík – „Við hugsum eiginlega bara um daginn í dag“

Einlægur Brynjar ræðir tilfinningnaþrungna tíma í Grindavík – „Við hugsum eiginlega bara um daginn í dag“
Eyjan
Fyrir 11 klukkutímum

Snorri Jakobsson: Fjárfestar hafa flutt sig af hlutabréfamarkaði yfir á fasteigna- og lóðamarkað

Snorri Jakobsson: Fjárfestar hafa flutt sig af hlutabréfamarkaði yfir á fasteigna- og lóðamarkað
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

„Drottning twerksins“ birtir djarft myndband sem slær í gegn – Sjón er sögu ríkari

„Drottning twerksins“ birtir djarft myndband sem slær í gegn – Sjón er sögu ríkari
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Spáin fyrir Lengjudeild karla: Keflavík spáð beint upp en talið að Afturelding fari aftur í umspilið

Spáin fyrir Lengjudeild karla: Keflavík spáð beint upp en talið að Afturelding fari aftur í umspilið