fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024

Íris Bachmann segir afbrýðisemi of algenga: „Af hverju ætti fólk að gleðjast þegar manni gengur illa?“

Aníta Estíva Harðardóttir
Miðvikudaginn 31. janúar 2018 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Írisi Backmann Haraldsdóttur finnst skortur á því í Íslensku samfélagi að fólk geti samglaðst náunganum og telur afbrýðisemi allt of algenga. Telur hún að líklegasta orsökin sé vegna þess hversu oft fólk ber sig saman við aðra.

Það er alltaf viss kjarni af fólki sem stendur alltaf með manni og svo er auðvitað alltaf einhver sem hreinlega getur ekki samglaðst öðrum og vill helst vera ofar og betri en allir aðrir,

segir Íris í einlægum pistli á bloggsíðu sinni.

Segir Íris yndislegt hversu margir séu að eltast við drauma sína í dag og framkvæma hugmyndir sem þeim hefur alltaf langað að gera.

Ber sig saman við aðra

En það sem ég er að meina er þessi blessaða afbrýðisemi, ég finn alveg fyrir henni hjá mér sjálfri af og til. Þrátt fyrir að ég reyni eins og ég get að styðja við allt og alla og koma vel fram við þá, þá kemur alltaf þessi tilfinning inn á milli. Maður fer að brjóta sig niður og bera sig saman við aðra og oft er það einhver sem er virkilega ólíkur manni.

Íris segist ekki skilja af hverju þessi tilfinning skuli alltaf koma upp og segist vita að hún sé ekki ein í þessum sporum.

Við berum okkur til dæmis saman við bestu vinkonu okkar og finnst alltaf eins og allir aðrir séu ofboðslega fallegir og fullkomnir en svo þegar kemur að okkur sjálfum þá er allt ómögulegt. Af hverju komum við svona fram við okkur. Flestir myndu aldrei koma svona fram við aðra.

Við erum öll öðruvísi

Íris segir algengt að ef einhver einstaklingur sé að eltast við drauma sína þá séu einhverjir aðrir aðilar sem þurfa að hafa skoðanir á því hversu glötuð sú manneskja er og hvað það sem hún er að gera sé ekki nógu gott.

Þetta er ótrúlega ljótt, af hverju talar fólk svona. Mér finnst við öll geta bætt okkur og æft okkur í því að samgleðjast öðrum. Hættum að bera okkur saman, við erum öll öðruvísi og okkur var ætlað að vera það. Öll höfum við einhverja drauma sem okkur langar að fylgja eftir, sumir ná því aðrir ekki. En þrátt fyrir að ná því ekki gerir það okkur ekki að verri manneskjum, við verðum að reyna að samgleðjast þeim sem ná að fylgja sínum draumum.

Íris segist sjálf hafa fundið fyrir neikvæðri orku þegar henni hefur vegnað vel í lífinu.

Af hverju ætti einhver að gleðjast þegar manni gengur illa? Af hverju ekki að gleðjast þegar manni gengur vel? Hættum bara að leyfa neikvæðu hugsunum okkar að ná stjórn og detta í einhverja afbrýðisemi. Við erum öll fullkomin eins og við erum, enda getum við ekki verið neinn annar, sama hvað við reynum.

Hægt er að fylgjast með Írisi á Snapchat og Instragram undir nafninu: irisbachmann

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Besta deild kvenna: Sandra skoraði fernu – Svakaleg endurkoma Stjörnunnar

Besta deild kvenna: Sandra skoraði fernu – Svakaleg endurkoma Stjörnunnar
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Mölbrotnaði eftir að hafa hrasað um köttinn sem slapp ómeiddur

Mölbrotnaði eftir að hafa hrasað um köttinn sem slapp ómeiddur
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Verðandi stjóri Liverpool minnir hann á goðsögnina

Verðandi stjóri Liverpool minnir hann á goðsögnina
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Segir Katrínu verða fyrir hatursfullum árásum – „Ein besta og heilsteyptasta manneskja sem ég hef kynnst“

Segir Katrínu verða fyrir hatursfullum árásum – „Ein besta og heilsteyptasta manneskja sem ég hef kynnst“
Fókus
Fyrir 16 klukkutímum

Sagan á bak við Frank Mills

Sagan á bak við Frank Mills
EyjanFastir pennar
Fyrir 19 klukkutímum

Sigmundur Ernir skrifar: Flestir kjósa til vinstri, líka hægrimenn

Sigmundur Ernir skrifar: Flestir kjósa til vinstri, líka hægrimenn
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Gerir risasamning við Pepsi og fær yfir 200 milljónir

Gerir risasamning við Pepsi og fær yfir 200 milljónir

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.