fbpx
Föstudagur 17.maí 2024

Lamar Odom: „Ég vil fá eiginkonuna mína aftur“

Ritstjórn Bleikt
Föstudaginn 13. janúar 2017 11:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lamar Odom er enn að vonast til þess að Khloé Kardashian taki við sér aftur. Í viðtali í þættinum The Doctors var hann spurður um framtíðina og hvers hann hlakkaði mest til. Lamar svaraði þá einlægt: Í hreinskilni sagt, ég vil fá eiginkonuna mína aftur.“ Áhorfendur í salnum fögnuðu ákaft yfir þessu svari.

Khloé og Lamar í febrúar á síðasta ári á tískusýningu Kanye West, Yeezy Season 3

Khloé sótti fyrst um skilnað frá Lamar 2013 eftir að upp komst um framhjáhald hans og fíkniefnaneyslu, þegar þau byrjuðu fyrst saman var hann körfuboltaleikmaður hjá LA Lakers. Khloé og Lamar giftu sig fyrir framan sjónvarpsupptökuvélar árið 2009 og sást Lamar reglulega í raunveruleikaþáttum fjölskyldunnar á þessum tíma. Eftir að þau hættu saman þá neitaði Lamar að skrifa undir skilnaðarpappírana og var á mjög vondum stað í lífinu, hann hætti aldrei að kalla Khloé eiginkonuna sína og átti erfitt með að sætta sig við sambandsslitin.

Khloe Kardashian með núverandi kærasta sínum

Í október árið 2015 fannst Lamar meðvitundarlaus á vændishúsi eftir að hafa tekið of stóran skammt fíkniefna. Þá hætti Khloé við skilnaðinn og tók að sér að hugsa um Lamar og öll mál tengd hans fjármálum og heilsu á meðan hann jafnaði sig. Hann byrjaði að sjást aftur með Kardashian fjölskyldunni og í raunveruleikaþætti þeirra.

Lamar byrjaði svo í neyslu á ný og sótti Khloé þá aftur um skilnað sem gekk í gegn í desember 2016. Í kjölfarið fór Lamar í meðferð í mánuð og var að útksrifast þaðan. Khloé er í hamingjusömu sambandi með körfuboltaleikmanninum Tristan Thompson en Lamar virðist ekki hafa gefið upp alla von.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

Raunverulegri fjarfundir með gervigreind og þrívídd

Raunverulegri fjarfundir með gervigreind og þrívídd
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Frakkar opinbera landsliðshópinn fyrir Evrópumótið

Frakkar opinbera landsliðshópinn fyrir Evrópumótið
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Líkamsræktarstöð hirti ekki um að skipta út 10 ára gömlum ströppum sem endaði með ósköpum

Líkamsræktarstöð hirti ekki um að skipta út 10 ára gömlum ströppum sem endaði með ósköpum
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Salah og Alisson efstir á blaði í Sádí Arabíu

Salah og Alisson efstir á blaði í Sádí Arabíu

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.