fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026

Kristín: Það er skelfilega langvinn og harðsvíruð pest að ganga sem leggst bara á stelpur

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 21. júní 2017 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er skelfilega langvinn og harðsvíruð pest að ganga. Hún leggst bara á stelpur og nú virðist hún enn fremur bara leggjast á stelpur í mínu nærumhverfi.“ Svona byrjar pistill Kristínar Ólafsdóttur sem birtist fyrst í Fréttablaðinu. Hún skrifar um farald krílanna og á þá við að sífellt fleiri stelpur í kringum hana eru ófrískar.

Maður einhvern veginn getur ekki blikkað augunum eða tekið sopa af kaffinu sínu eða lækað fyrstu sónarmynd á Instagram fyrr en önnur opinberun er komin á snjallmiðlana. „Lítið kríli á leiðinni í október! Við erum í skýjunum!“

Skrifar Kristín í Fréttablaðinu. Hún segir að það gildi „kóreógraferuð tilkynningarskylda“ þar sem fínlega prjónuðum, örsmáum skóm er tyllt ofan á hvítan blúndudúk.

„Samfella sem enginn hefur enn þá farið í og á stendur „Pabbi minn er STERKARI en pabbi ÞINN.“ Og meðfylgjandi er enn ein svarthvíta myndin af leginu í stelpu sem var með manni í 10. bekk í Hagaskóla og maður sér móta fyrir kunnuglegum, móðukenndum molanum. Eins og baun. Það er sko kríli á leiðinni.“

Hún bætir því við að það alversta sé að hún er ekki lengur hissa á að jafnaldra hennar sem boraði svo mikið í nefið þegar hún var yngri ætlar að eignast barn eftir þrjá mánuði. Því nú er hún orðin passlega gömul. „Sannleikurinn er þess vegna sá að ég, Kristín Ólafsdóttir, er líka komin á barneignaraldur. Og það er óhugnanlegt. Eða kannski er ég bara bitur yfir því að enginn hefur enn viljað eignast kríli með mér. Kannski.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Allar líkur á að hann fari frá Newcastle í sumar

Allar líkur á að hann fari frá Newcastle í sumar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 klukkutímum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Árni Stefán eys svívirðingum yfir starfsfólk MAST eftir aðgerðina í gær – „Það er búið að taka ALLT af mér sem skiptir mig máli“

Árni Stefán eys svívirðingum yfir starfsfólk MAST eftir aðgerðina í gær – „Það er búið að taka ALLT af mér sem skiptir mig máli“
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Gróf upp látna systur sína og gekk með hana þriggja kílómetra leið

Gróf upp látna systur sína og gekk með hana þriggja kílómetra leið
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Dóttir hins umdeilda sérfræðings vekur athygli með mjög djörfum myndum

Dóttir hins umdeilda sérfræðings vekur athygli með mjög djörfum myndum
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Gæti komið óvænt búbót í bókhaldið hjá United í sumar

Gæti komið óvænt búbót í bókhaldið hjá United í sumar
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Grátbiður United um eitt ár í viðbót af Casemiro

Grátbiður United um eitt ár í viðbót af Casemiro
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Ætla að dæla upp meira af heitu vatni í Reykjavík

Ætla að dæla upp meira af heitu vatni í Reykjavík

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.