fbpx
Sunnudagur 14.desember 2025
Fókus

Manuela gengin út?

Fókus
Föstudaginn 22. nóvember 2019 08:37

Manuela Ósk Harðardóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhrifavaldurinn og athafnakonan Manuela Ósk Harðardóttir hefur mikið verið á faraldsfæti undanfarið sökum vinnu sinnar en um síðustu helgi sást hún yfirgefa landið í samstarfi við Base Parking og það í heldur óvæntum félagsskap. Samkvæmisdansarinn Jón Eyþór Gottskálksson var með í för en parið leiðir saman hesta sína í sjónvarpsþáttunum Allir geta dansað sem sýndir verða á Stöð 2 innan skamms.

Manuela og Jón í dansgallanum.

Bæði eru þau Jón Eyþór og Manuela með opna Instagram-reikninga þar sem þau leyfðu fylgjendum sínum að fylgjast með þeim njóta lífsins í London og fór vel á með þeim. Meðal annars lýsti Jón Eyþór því yfir að honum þætti Manuela fullkomin í alla staði.

Hvort um sjálfskipaða æfingaferð er að ræða er ekki ljóst á þessari stundu en samkvæmt heimildum DV hefur djúpur vinskapur myndast hjá parinu og mætti í kjölfarið leiða að því líkur að þau séu jafnvel meira en bara vinir. Manuela hefur um langa hríð verið talin ein eftirsóttasta, einhleypa kona landsins og óskum við við Jóni Eyþóri hjartanlega til hamingju hafi hann hreppt hnossið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Kommentakerfi Jerusalem Post logar eftir Eurovision-ákvörðun Íslendinga

Kommentakerfi Jerusalem Post logar eftir Eurovision-ákvörðun Íslendinga
Fókus
Fyrir 2 dögum

Dagbjört deilir áhrifaríku ráði fyrir jólin en eflaust flestir ekki tilbúnir að taka því

Dagbjört deilir áhrifaríku ráði fyrir jólin en eflaust flestir ekki tilbúnir að taka því
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einstaklega falleg íbúð til sölu á Hverfisgötu

Einstaklega falleg íbúð til sölu á Hverfisgötu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leikarinn hefur misst yfir 75 kíló – Þetta borðar hann til að viðhalda þyngdartapinu

Leikarinn hefur misst yfir 75 kíló – Þetta borðar hann til að viðhalda þyngdartapinu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sunneva gáttuð að ungir krakkar séu farnir að sækjast aftur í þetta – „Náttúrulega alveg galið“

Sunneva gáttuð að ungir krakkar séu farnir að sækjast aftur í þetta – „Náttúrulega alveg galið“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Skilur ekkert í myndinni sem raunveruleikastjarnan birti af honum – „Uuu… hvað gerðirðu við andlitið mitt?“

Skilur ekkert í myndinni sem raunveruleikastjarnan birti af honum – „Uuu… hvað gerðirðu við andlitið mitt?“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hópur unglinga var að eyðileggja upplifunina í Smárabíó – Hrósar viðbrögðum starfsfólksins

Hópur unglinga var að eyðileggja upplifunina í Smárabíó – Hrósar viðbrögðum starfsfólksins
Fókus
Fyrir 5 dögum

Telur sig hafa slegið Íslandsmet í dósaflokkun – „RIP allir aðrir sem voru að fara með dósir á eftir þér“

Telur sig hafa slegið Íslandsmet í dósaflokkun – „RIP allir aðrir sem voru að fara með dósir á eftir þér“