fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

„Skylda okkar sem erum með heilsuna í lagi að létta undir með öðrum“

Örvar Þór Guðmundsson og Samferða safna fyrir bágstadda sjöttu jólin í röð

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 8. desember 2017 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Örvar Þór Guðmundsson hafði aldrei komið nálægt sjálfboðaliðastörfum áður þegar hann heyrði útvarpsviðtal fyrir sex árum síðan við konu sem átti ekki fyrir jólunum. Hann byrjaði að safna á eigin Facebooksíðu fyrir einstaklinga sem þurftu á fjárhagsaðstoð að halda. Fyrir ári síðan stofnaði hann ásamt fleiri samtökin Samferða og segir hann beiðnir um fjárhagsaðstoð aukast á hverju ári.

„Ég vaknaði við þetta útvarpsviðtal, segir Örvar. „Ég hélt að allir ættu pening til að halda jól, en svo hef ég nú rekist á annað á þessum árum. Þetta er bara lítil og krúttaraleg „konsept,“ en við erum að safna nokkrum milljónum á ári.“
Áherslan er lögð á foreldra sem eru með langveik börn og fólk á öllum aldri sem er að glíma við lífsógnandi sjúkdóma.

„Ég byrjaði bara með þetta á eigin Facebooksíðu, síðan er þetta bara búið að stækka,“ segir Örvar. Í september árið 2016 stofnaði hann ásamt fjórum öðrum samtökin Samferða og er Vigfús Bjarni Albertsson prestur verndari samtakanna. Stjórnin hittist einu sinni í mánuði og öll vinna er unnin í sjálfboðavinnu.

„Við erum með áherslu á jólin, en við söfnum allt árið og hittumst einu sinni í mánuði,“ segir Örvar. „Við styrkjum fjölskyldur í hverjum mánuði, en mest fyrir jólin.“

Umsóknum fjölgar á hverju ári

„Við verðum alltaf þekktari og umsóknum fjölgar á hverju ári. Við vinnum mest eftir ábendingum, en við fáum líka umsóknir frá fólki sem á ekki sjálft peninga. Fólk sem glímir við sjúkdóma verður fyrir gríðarlegu tekjutapi, auk þess sem bætist við kostnaður vegna lyfja og lækniskostnaðar. Mér finnst nóg að leggja sjúkdóm á viðkomandi þó hann þurfi ekki að tæma fjárhaginn líka. Það velur sér enginn að fá sjúkdóm. Við sem erum með heilsuna ennþá getum létt undir með öðrum, mér finnst það pínu skylda hjá okkur.“

Örvar Þór segir ekki vanta upp á að einstaklingar, sem tök hafa á og fyrirtæki gefi af sér. Þegar viðtalið er tekið á miðvikudagshádegi hafa 2,9 milljónir safnast inn á reikning samtakanna.

„Fyrir síðustu jól hringdum við í konu á sjötugsaldri sem var með krabbamein og var að fara í lyfjagjöf daginn eftir, þegar við hringdum átti hún 50 kr., var hvorki búin að kaupa jólamat né jólagjafir. Þannig að þú getur ímyndað þér hvað greiðslan til hennar gladdi hana mikið.“

Góðgerðarviðburðir Samferða

Samferða hélt tónleika í lok nóvember í Bæjarbíói sem voru vel sóttir og vel látið af. Allir listamenn gáfu vinnu sína og allur ágóði rann til samtakanna. „Rútur Snorrason í stjórn Samferða sá um tónleikana, hann byrjaði á þessu í Vestmannaeyjum og framundan eru tónleikar á Egilsstöðum og Akureyri sem haldnir verða á komandi mánuðum,“ segir Örvar.

Á morgun laugardag verður Góðgerðarspinning í Reebok Fitness í Hafnarfirði og er það annar stjórnarmaður Samferða, Brynja Guðmundsdóttir, sem skipuleggur það. „Allir eru velkomnir, tíminn kostar 2.000 kr., en einnig má greiða frjáls framlög.“

42 fjölskyldur hafa fengið styrk það sem af er fyrsta starfsári

Það sem af er fyrsta starfsárinu hefur Samferða styrkt 42 fjölskyldur. „Síðan í desember bætast líklega við 30-40 fjölskyldur,“ segir Örvar.

Stjórnin mun funda þriðjudaginn 12. desember næstkomandi og styrkja í kjölfarið einstaklinga og fjölskyldur fyrir jólin. Hinsvegar má leggja inn á reikning Samferða allt árið og senda beiðnir um aðstoð allt árið. „Við styrkjum með peningagreiðslum,“ segir Örvar, „ég vil bara að fólk geti hagað sínum jólum sjálft, eins og það hefði gert ef að slæmur fjárhagur og/eða veikindi hefðu ekki komið til.“

Viltu styrkja Samferða?

Samferða Góðgerðarsamtök aðstoða fólk fjárhagslega sem hafa orðið fyrir áföllum í lífinu hvort sem það eru tengd veikindum hjá foreldrum eða börnum. Nú eða hvað sem er. Hægt er að leggja inn á reikning samtakanna, biðja banka um að skuldfæra mánaðarlega eða senda sms.Banki 0327-26-114Kt. 651116-2870

Samtökin Samferða voru stofnuð í september 2016.
Samferða Samtökin Samferða voru stofnuð í september 2016.
Hægt er að skuldfæra mánaðarlega af bankareikningi.
Skuldfærsla Hægt er að skuldfæra mánaðarlega af bankareikningi.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Gunnar lokkaði dreng upp í bíl og misnotaði – Drengurinn tók upp hníf og komst úr íbúðinni

Gunnar lokkaði dreng upp í bíl og misnotaði – Drengurinn tók upp hníf og komst úr íbúðinni
Fókus
Fyrir 9 klukkutímum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

Leið eins og Mary Poppins

Leið eins og Mary Poppins
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum