fbpx
Mánudagur 11.ágúst 2025
Fókus

Una varð móðir 22 ára: „Fleiri en ein braut sem maður getur fetað í gegnum þetta líf“

Þurfti að flýta barneignum í kjölfar óvæntra fregna

Auður Ösp
Miðvikudaginn 25. janúar 2017 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þetta var ákveðið áfall, barnahlutinn hafði nú einu sinni verið rúsínan í pylsuenda hinnar fullkomnu framtíðaráætlunar. Ég var ekki einu sinni byrjuð í draumanáminu, hvað sem það þá yrði,“ segir Una Haraldsdóttir 23 ára og nýbökuð móðir eins mánaðar gamallar stúlku. Hún segir ófáa hafa furðað sig á ákvörðun hennar og unnusta hennar Orra Eiríkssonar að eignast barn snemma á þrítugsaldri, enda líti flestir á það svo að best sé bíða með barneignir þar til fólk hefur menntað sig og komið undir sig fótunum. Það er þó ekki alltaf í boði, og þannig var það í tilfelli Unu.

Una birti hugleiðingar sínar í einlægum pistli á fésbók nú á dögunum þar sem hún lýsir því hvernig hún þurfti að breyta forgangsröðun sinni í lífinu fyrir rúmu ári. Ástæðan var sú að blóðprufa leiddi í ljós að miðað við eggjabúskap hennar hafði hún ekki langan tíma til stefnu ef hún vildi geta gengið með og eignast barn á náttúrulegan hátt.

„Tilgangurinn með skrifum var að reyna að vekja athygli á þessu þar sem mér finnst fólk almennt ekki meðvitað um þennan möguleika Það eru fullt af konum á öllum aldri búnar að hafa samband og forvitnast um blóðprufuna og ferlið í heild sinni, bæði fyrir sig sjálfar og einhverjar fyrir dætur sínar. Mér finnst yndislegt að þetta skuli gagnast einhverjum,“ segir Una í samtali við blaðamann.

Áfall í fyrstu en er þakklát í dag

„Fyrir rúmu ári síðan lenti ég á tali við stelpu sem var nokkrum árum eldri en ég. Hún átti barn sem hún hafði eignast 22 ára. Þar sem framtíðarplan mitt og flestra sem ég þekkti voru nokkurn veginn á þennan veg: klára nám (án þess svo sem að vita þá hvað ég vildi læra), fá góða vinnu (án þess að vita hvað ég vildi vinna við), finna mér maka (var reyndar vel sett í þeim málum), kaupa fallegt hús (svo fjarlægt markmið að það glitti ekki einu sinni í það) og þegar allt þetta væri komið á hreint; eignast börn, þá fékk ég það út að það hlyti að vera mjög ópraktískt að vera eitthvað að rugla í kerfinu og færa barneignir framar í röðina. Ég skildi ómögulega hvernig hún hefði farið að því að ná sér bæði í gráðu og góða vinnu og stússast í að ala upp krakka á meðan.

Ég gerðist svo djörf að spyrja hana hvort barnið hefði verið planað eða hvort hún hefði „óvart“orðið ólétt. Hún sagði mér að hún hefði farið í blóðprufu sem sagði til um eggjafjölda hennar og komist að því að hún hefði ekki mörg ár til þess að eignast börn. Þess vegna ákváðu hún og kærastinn hennar að drífa í því á meðan þau gætu. Hún sagði mér líka að hún hefði ekki séð eftir því einn einasta dag,“

ritar Una í pistli sínum og bætir við að umrædd blóðprufa hafi setið í sér í marga daga á eftir.

„Ég losnaði ekki við þá tilfinningu að ég ætti að láta athuga þetta hjá mér en þar sem ég get státað mig af ansi skrautlegri sjúkrasögu fannst mér ekkert svo ólíklegt að það gæti hafa haft áhrif á eggjabúskapinn. Verandi glasabarn sem á tvö ættleidd systkini vissi ég líka að frjósemi er ekki sjálfsagður hlutur og að í mörgum tilvikum koma börnin alls ekki af sjálfu sér. Ég fékk tíma hjá lækni sem skoðaði mig í bak og fyrir og þrátt fyrir vægt legslímuflakk leit allt eðlilega út. Þegar ég nefndi blóðprufuna voru fyrstu viðbrögð læknisins að hún væri óþörf, ég væri bara 21 árs og það væri að öllum líkindum engar áhyggjur að hafa. Það endaði með því að ég fór samt í hana og 3 vikum seinna hringdi læknirinn og sagði að niðurstöðurnar væru aðrar en við hafði búist. Að ef ég ætlaði mér að eignast börn þá ætti ég ekki að bíða lengi með það, helst bara sem styst.“

Ljósmynd/Einar Rafnsson.
Ljósmynd/Einar Rafnsson.

Una segir fréttirnar hafa verið ákveðið áfall enda barneignir ekki tímabærar á þessum tímapunkti í lífi hennar.

„Ég var ekki einu sinni byrjuð í draumanáminu, hvað sem það þá yrði. Mér varð hugsað til stelpunnar, hún hafði aldrei séð eftir þessu og aðlagaði líf sitt og áætlanir bara að því að eiga barn í stað þess að láta það stöðva sig í einhverju. Eftir að hafa svoleiðis baðað höfuðið í bleytu komst ég alltaf að sömu niðurstöðunni. Hún var sú að af öllum áföngum plansins var bara einn þeirra sem ég var 100% viss um – og það var að einn daginn myndi ég vilja börn.

Ég var svo heppin að eiga mann sem stóð sem klettur við bakið á mér í gegnum allan tilfinningarússíbanann og var ekki lengi að gúddera uppkastið að hinu nýja plani. Stuttu seinna tók við 13 vikna gubbuveisla með öllu tilheyrandi, sem við tókum heldur betur fagnandi. Flestir fögnuðu með okkur en þó var fólk héðan og þaðan sem tilkynnti mér að það hefði nú verið sniðugt að bíða með þetta þar til eftir háskólanám. Barnlaust fólk væri nefnilega frekar ráðið í vinnu, svo ekki væri minnst á að spara fyrir fasteign, það væri nánast ómögulegt með barn eins og staðan væri í dag. Þetta voru nákvæmlega þau sömu, þröngsýnu sjónarmið og ég sjálf hafði haft nokkrum mánuðum áður (þó ég hefði kannski sleppt því að messa þeim yfir aðila sem á von á barni).

Það er nefnilega þannig að nútímasamfélagið okkar er ótrúlega litað af þessari fyrrnefndu röð aðgerða, sjálf sá ég enga aðra leið fyrr en ég var svo gott sem þvinguð til þess. En mikið er ég þakklát stelpunni sem sagði mér frá blessaðri blóðprufunni því að án hennar hefði mér örugglega ekki dottið í hug að hætta á pillunni fyrr en eftir mörg ár, þegar það hefði að öllum líkindum orðið of seint fyrir mig að ganga með barn. En að sama skapi finnst mér sorglegt að í báðum tilvikum hafi smár tímarammi haft áhrif á ákvörðun okkar um að eignast barn á þessum aldri, en ekki það að okkur hafi langað það af fyrra bragði og þorað að fylgja þeirri tilfinningu.“

Una sér hvergi eftir ákvörðun sinni í dag og lítur björtum augum á framtíðian.

„Í dag er ég 22 ára og við Orri eigum 1 mánaðar gamlan sólargeisla sem glæðir lífið svo sannarlega nýjum tilgangi. Og viti menn, ég kláraði önn í arkitektúr kasólétt og hlakka til að halda áfram að vinna í framtíðarplaninu góða samhliða því að vera mamma.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Bað kærustuna um að senda vini sínum nektarmyndir – Það kom í bakið á honum

Bað kærustuna um að senda vini sínum nektarmyndir – Það kom í bakið á honum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jennifer Lopez meinaður aðgangur að Chanel verslun – Viðbrögð hennar komu á óvart

Jennifer Lopez meinaður aðgangur að Chanel verslun – Viðbrögð hennar komu á óvart
Fókus
Fyrir 5 dögum

Martröð fyrirsætunnar: Fékk óhugnanleg skilaboð frá móður sinni degi áður en henni var rænt

Martröð fyrirsætunnar: Fékk óhugnanleg skilaboð frá móður sinni degi áður en henni var rænt
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einar Bárðar á tímamótum: „Þetta er helvíti fínt skal ég segja ykkur“

Einar Bárðar á tímamótum: „Þetta er helvíti fínt skal ég segja ykkur“