Völva DV rýnir í stöðu innanríkisráðherra
Ólöf Nordal situr uppi með svartapétur. Það er nánast ómögulegt að vera innanríkisráðherra á Íslandi þegar kemur að flóttamannavandanum.
Fjölmiðlar beita sér af krafti og segja sögur þess fólks sem leitar til Íslands í von um framtíð. Ólöf og hennar fólk verða alltaf skrefi á eftir og gera ekki annað en að slökkva elda.
Ástandið skánar þó þegar kemur fram í maí og norska aðferðin, eða 48 stunda reglan, verður tekin upp. Ólöf er samt löskuð í pólitík eftir flóttamannamálin. Hún styrkir stöðu sína undir lok árs.