fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fókus

Grínistinn hélt upp á afmælið nakin í finnskum snjó

Fókus
Fimmtudaginn 5. mars 2026 09:37

Chelsea Handler

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Grínistinn Chelsea Handler lét fötin flakka og hélt upp á 51 árs afmælið í snjónum í Finnlandi.

Handler deildi mynd á Instagram þar sem hún stendur í snjónum aðeins klædd húfu á afmælisdegi sínum þann 25. febrúar.

Á fleiri myndum má sjá hana á snjósleða, njóta norðurljósanna með kærastanum, í kofa sem þau gistu í og gæða sér á afmælisköku.

„Ég ákvað að það væri kominn tími til að minna mig á náttúrufegurð þessa heims, svo ég skellti mér til Finnlands fyrir norðurljós og snjóhús. Einn friðsælasti staður sem ég hef nokkurn tímann komið á og fékk að halda upp á afmælið mitt við norðurheimskautsbauginn í afmælisfötunum mínum.“

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Chelsea Handler (@chelseahandler)

Handler minnist ekki á manninn sem er með henni í ferðinni en aðdáendur hennar tóku strax eftir að um nýjan kærasta er að ræða.

Fyrir ári síðan blés hún kertin á afmælisköku sinni. „Ég er að óska ​​mér einhvers. Þetta er um mann!“ grínaðist hún. Í janúar sagðist  Handler vera að hitta mann. „Það er nýr maður í bænum,“ sagði hún í hlaðvarpinu Not Skinny But Not Fat. Sagðist hún opin fyrir sambandi, maðurinn væri bandarískur og hún væri „viss um að hann hefði egó.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Fékk áfall þegar hún kíkti í síma eiginmannsins – Það var bara upphafið að martröðinni

Fékk áfall þegar hún kíkti í síma eiginmannsins – Það var bara upphafið að martröðinni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fréttin sem Jóhann Hlíðar neitar að skrifa

Fréttin sem Jóhann Hlíðar neitar að skrifa
Fókus
Fyrir 6 dögum

Kynlífsstellingar til að prófa um páskana – Páskakanínan og danglaðu gulrótinni

Kynlífsstellingar til að prófa um páskana – Páskakanínan og danglaðu gulrótinni
Fókus
Fyrir 1 viku

Ertu að fara gifta þig? Þá skaltu ekki horfa á þessa nýju seríu á Netflix

Ertu að fara gifta þig? Þá skaltu ekki horfa á þessa nýju seríu á Netflix