fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli

Fókus
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 06:30

Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tuttugu og sex ára kona leitaði til kynlífs- og sambandsráðgjafa The Sun, Dear Deidre, vegna vandamáls sem hún stendur frammi fyrir. Konan svaf hjá kærastanum sínum og fyrrverandi kærasta sínum með eins dags millibili og varð ólétt í kjölfarið. Nú þegar barnið er fætt veit hún ekki hvor er pabbinn.

„Ég er 26 ára og hef verið með kærastanum mínum í næstum tvö ár. Hann er 29 ára og frá því við hittumst vissi ég að hann væri sá eini rétti. Hann er góður, heiðarlegur og traustur. Á þeim tíma kunni ég þó ekki að meta þessa eiginleika eins og ég hefði átt að gera.“

Konan segir að hún hafi enn borið tilfinningar til fyrrverandi kærasta síns sem er 25 ára. „Hann er heillandi, spennandi en mjög óáreiðanlegur.“

Konan segir að hún hafi verið um það bil að flytja inn til kærasta síns þegar fyrrverandi kærasti hennar sendi henni skilaboð og bauð henni með sér á tónleika með hljómsveit sem hann heldur upp á.

„Við áttum frábært kvöld og það virtist bara eðlilegt að fara heim til hans á eftir. Ég sagði við sjálfa mig að kynlífið væri bara stundargaman í síðasta sinn. Kvöldið eftir borðaði ég kvöldmat hjá kærastanum mínum og við sváfum líka saman.“

Konan segir að hún hafi verið þjökuð af samviskubiti þegar hún svaf hjá kærastanum daginn eftir.

„Eftir þetta reyndi ég að ýta fyrrverandi kærastanum úr huga mér – sem reyndist ómögulegt þegar ég uppgötvaði að ég var ólétt. Ég reyndi að sannfæra sjálfa mig um að yndislegi kærastinn minn væri faðirinn,“ segir konan.

Hún segist hafa verið ákveðin í að laga hlutina og tilkynnti hún kærastanum að þau ættu von á barni saman. Á sama tíma sagði hún fyrrverandi kærastanum að hún gæti ekki hitt hann aftur þar sem hún ætti nú von á barni með sínum heittelskaða.

„Það losaði mig þó ekki við hann og hann bað stöðugt um að hitta mig. Það var hræðilegt. Um leið og fallegi sonur minn fæddist laug ég að fyrrverandi mínum og sagði honum að ég hefði farið í DNA-próf sem staðfesti að hann væri ekki faðirinn. Sonur minn er nú sex mánaða og er mjög líkur kærastanum mínum. Ég trúi því að það sé sönnun þess að hann sé í raun og veru faðirinn. En sannleikurinn er sá að ég veit það í raun ekki og það étur mig að innan á hverjum einasta degi.“

Svona svaraði ráðgjafinn:

„Leyfðu ekki fyrri mistökum þínum að skyggja á þá dásamlegu staðreynd að þú átt nú fallegt barn. Hann á góða og ástríka föðurímynd. Þinn fyrrverandi er ekki lengur í lífi þínu og kærastinn þinn tekur fulla ábyrgð á hlutverki sínu sem faðir. Fylgdu hans fordæmi og einbeittu þér að framtíðinni sem þið eruð að byggja saman. Sonur þinn líkist honum og á allan þann hátt sem raunverulega skiptir máli er hann faðir hans. Lærðu af mistökunum og einbeittu þér að lífinu sem þið eigið saman.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís
Fókus
Fyrir 5 dögum

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hödd komin á Ísland í dag – Á skjánum eftir langt hlé

Hödd komin á Ísland í dag – Á skjánum eftir langt hlé