

Íslendingur sem segist vera á leiðinni til Bandaríkjanna til að heimsækja vini óskar eftir ráðleggingum á Reddit um hvað frá Íslandi hann eigi að koma með til að gefa þessum vinum sínum. Viðtökur landa þeirra við fyrirspurninni eru mjög góðar og yfir 100 svör hafa borist. Kennir þar ýmissa grasa en það sem Bandaríkjamenn virðast almennt einna spenntastir fyrir frá Íslandi er sælgæti, Bónus, áfengi og lopi.
Áður hefur komið fram að Bandaríkjamenn virðast af einhverjum ástæðum vera sérstaklega hrifnir af varningi sem merktur er verslanakeðjunni sem allir Íslendingar ættu að þekkja, Bónus.
Bónus varningur hefur öðlast varanlegan sess í bandarískri menningu
Leggja þó nokkrir því til að Íslendingurinn komi með slíkan varning til að gefa vinum sínum.
Aðrir leggja til súkkulaðihúðaðan lakkrís og nefnd eru til sögunnar til að mynda Djúpur, Þristur og Omnom. Hraun er einnig sælgætistegund sem nokkrir nefna og ýmsir nefna íslenskt sælgæti án þess að nefna tiltekna tegund.
Tillaga um brennivín og rúgbrauð fær góðar undirtektir. Fleiri íslenskar áfengistegundir eru nefndar en í einhverjum tilfellum tegundir sem velta má fyrir sér hvort að fá fáist í áfengisverslunum til að mynda rabbabaravín en þó nokkrir leggja til íslenskt gin án þess að nefna tiltekna tegund.
Nokkuð er um tillögur um íslenskar ullarvörur t.d. peysur eða sokka.
Þetta allt er það sem helst hefur verið nefnt sem góðar gjafir frá Íslandi fyrir Bandaríkjamenn en einnig eru nefnd til sögunnar til dæmis hákarl, snyrtivörur, salt og pylsur frá Bæjarins Bestu. Það er því greinilega margt á Íslandi sem vakið hefur áhuga og ánægju hjá Bandaríkjamönnum sem hingað hafa komið.