fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Gítarleikari Radiohead vill tónlist sína úr umdeildri heimildarmynd um Melaniu Trump

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 16. febrúar 2026 17:30

Heimildarmyndin um Melaniu þykir vera afleit.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jonny Greenwood, gítarleikari hljómsveitarinnar Radiohead, hefur krafist þess að tónlist sem hann samdi verði fjarlægð úr heimildarmyndinni um Melaniu Trump. Greenwood var ekki spurður álits á notkuninni.

Greint er frá þessu í dagblaðinu San Francisco Chronicle.

Tónlistin sem um ræðir var upphaflega notuð í kvikmyndinni Phantom Thread, leikinni mynd eftir Paul Thomas Anderson frá árinu 2017 sem skartaði Daniel Day-Lewis í aðalhlutverki. Var Greenwood tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir téða tónlist.

Anderson hefur tekið undir kröfu Greenwood um að tónlistin verði fjarlægð úr heimildarmyndinni Melania. Hvorugur þeirra á hins vegar höfundarréttinn að tónlistinni heldur kvikmyndaverið Universal.

„Það er búið að vekja athygli okkar á því að tónlist úr kvikmyndinni Phantom Thread hafi verið notuð í heimildarmyndinni Melania,“ segir í yfirlýsingu Greenwood og Anderson um málið. „Þó að Jonny Greenwood eigi ekki höfundarréttinn að tónlistinni þá hafði Universal ekkert samráð við hann um notkun til þriðja aðila, sem er brot á rétti tónskáldsins. Þess vegna hafa bæði Jonny og Paul Thomas Anderson krafist þess að tónlistin verði fjarlægð úr heimildarmyndinni.“

Framleiðendur heimildarmyndarinnar hafa hins vegar hafnað kröfu Greenwood og Anderson.

„Þetta er hrein lygi. Við höfum lagalegan rétt til að nota alla tónlistina í myndinni Við gerðum allt á réttan hátt,“ sagði Marc Beckman, ráðgjafi Melaniu Trump.

Fyrir utan það að nota tónlist í óleyfi þá hefur heimildarmyndin fengið mikla gagnrýni og þykir ein sú versta sem komið hefur út. Hún fær aðeins 10% einkunn á vefsvæðinu Rotten Tomatoes svo dæmi sé tekið. Þá hefur miðasalan verið langt undir væntingum miðað við gríðarlegan framleiðslukostnað myndarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“