fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

„Ég vil að Stefán Máni verði betri en Jo Nesbø“

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 1. febrúar 2026 12:00

Sandra Óm. Mynd: Aðsend.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég heiti Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir en er kölluð Sandra Óm og ég fæddist 10. apríl það frábæra ár 1974 er því Generation X. Ég er fædd og uppalin á Skagaströnd og vil ég hvergi annars staðar búa. Ég fann manninn minn bara í næstu götu við mig, hann Hrólf Eggert Pétursson húsasmið, hann byggði okkur eitt stykki pýramídahús eftir arkitekt sem heitir Vífill Magnússon og höfum við búið í því húsi í rúm 25 ár.  Við eigum þrjár uppkomnar dætur og eina Chihuahua voffa-stelpu sem heitir Jasmine. Ég á líka tvo yndislega ömmudrengi.

Ég vinn sem bókavörður á Bókasafni Skagastrandar og Skólabókasafni Höfðaskóla. Ég tók við forstöðu á aðal-bókó haustið 2021 og skóla-bókó árinu seinna. Ég elska vinnuna mína, það má eiginlega segja að ég sé loksins komin á réttu bóka-hilluna í lífinu. Ég hef alltaf verið mikill bókaormur og ég kýs fremur að vera heima með góða bók eða föndra og hlusta á góða bók í frítíma mínum heldur en allt annað.“

Ragnheiður er lesandi DV.

Hvaða bók/bækur ertu að lesa núna?

Ég er alltaf að lesa nokkrar bækur í einu. Ég á þrjú lesbretti, Amazon, Storytel, og Kobo lesbretti. Ég er með áskrift hjá Storytel, bæði les og hlusta þar. En skemmtilegast finnst mér þó að lesa bara venjulega bók.

Ég er að lesa Eitraður Sannleikur eftir Camilla Sten (bók), The Sleepwalker eftir Lars Kepler (Kobo), The Crimes of Dorian Gray á Amazon Kindle, og The Last Wish eftir Andrzej Sapkowski á Audible. Ég hætti að horfa á The Witcher á Prime video þegar Henry Cavil hætti og fór þá að hlusta á bækurnar. Svo er ég að hlusta á og lesa til skiptis Systraklukkurnar eftir Lars Mytting á Storytel.

Hvaða bók/bækur laukstu við síðast og hvernig fannst þér hún/þær?

Ég var að klára, Ragnarök undir Jökli – Skúli Sigurðsson, mér fannst hún allt í lagi.

Ég bíð spennt í hverjum mánuði eftir Ættarsögunni eftir Toril Thoup á Storytel var að klára bók nr. 7, ég háma þær alveg í mig svo skemmtilegar.

Núllkynslóðin eftir Stefan Ahnhem var fín, bara allt of löng og það gerðist ekkert að ráði fyrr en rétt í lokin. Svo var ég líka að klára A Little Life eftir Hanya Yanagihara. Alveg hreint mögnuð bók hún var búin að vera á tbr listanum mínum lengi. (TBR er stytting á To Be Read eða Til að lesa).

Hefurðu nýlega gefist upp á að lesa einhverja bók eða hefurðu lesið einhverja bók nýlega sem stóðst ekki væntingar?

Það eru svo margar bækur sem mig langar að lesa en ég veit að ég kemst aldrei yfir að lesa þær allar, þannig að ég setti mér skilyrði að ef að bókin er ekki búin að ná mér eftir 100 bls. þá fær hún ekki meira af mínum tíma.  Lilja Sigurðardóttir skrifaði svo skemmtilegan þríleik: Netið, Búrið og Gildran að hún hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér síðan þá og ég hef lesið allt eftir hana. Alfa; ég varð kjaftstopp, hún fékk meira að segja 150 bls. af mínum tíma, en nei hún hreif mig ekki. Þannig að það er eina bókin sem ég kláraði ekki árið 2025.

Ég elska Hörð Grímsson, en ég varð fyrir miklum vonbrigðum með nýjustu bók Stefáns Mána, þá voru þetta að mínu mati mjög ómerkileg morð og Hörður minn bara fastur í sömu hjólförunum. Það sem ég vil fá að sjá, eru einhver þroskamerki hjá Herði, hann þarf að taka ábyrgð gagnvart fjölskyldu sinni. Allt gott og blessað að vera „introvert” og þurfa sitt eigið „space“ (kofa í Borgarfirðinum), ég væri sjálf til í að loka mig af í kofa í nóvember og desember og lesa jólabókaflóðið. Ég vil að Hörður nái góðu jafnvægi á vinnu og fjölskyldulífinu betur en Harry Hole gat. Ég vil að Stefán Máni verði betri en Jo Nesbø.

Hvar finnst þér best að lesa og er einhver tími dags betri en annar?

Ég les hvar og hvenær sem er. Ég fer aldrei að heiman nema með allavega eina bók og eitt lesbretti með mér.  En ætli það sé ekki best að lesa í bíl, mér leiðist alveg ótrúlega mikið að ferðast í bíl, þannig að það er þó skömminni skárra að lesa á meðan eiginmaðurinn keyrir, ég er þessi týpíska „passenger princess“, með teppi, heitt og gott kaffi og bók og við erum komin á áfangastað áður en ég veit af. Ég meira að segja les á meðan við förum ísrúnt inn á Blönduós sem er aðeins um 20 mínútna keyrsla.

Manstu eftir hvaða bók var lesin fyrst fyrir þig sem barn og/eða sem þú last sjálf/ur sem barn?

Ég las Pollyönnu og Önnu í Grænuhlíð í ræmur sem krakki og allar týpísku barna- og ungmennabækurnar. En snemma fór ég í glæpasögurnar hjá mömmu og ég veit ekkert betra en að lesa góðan krimma. Pabbi gaf mömmu alltaf bók í jólagjöf eftir einn af hennar uppáhalds höfundum, Mary Higgings Clark, hún las hana alltaf á aðfangadagskvöld eða jólanótt og svo fékk ég að lesa bókina.

Þegar svo pabbi og mamma skildu og mamma flutti suður þá tók ég við að gefa henni nýjustu bók Mary Higgins Clark og keypti mér líka bókina og gaf mér hana í jólagjöf eða lét dætur mínar gefa mér hana. Svo var komin keppni á milli okkur mæðgna hver yrði nú á undan að klára bókina og sú átti að hringja í hina. Oftast var mamma á undan mér en vá hvað ég var montin þegar ég loksins náði að verða á undan henni.

Það sem Mary Higgins Clark hafði fram yfir svo marga höfunda í dag eru örstuttir kaflar og endalaus blaðsíðu-flettari, maður segir alltaf við sjálfan sig einn kafla í viðbót og áður en maður veit af er bókin búin. Ég elska svoleiðis bækur mér finnst stundum eins og rithöfundar í dag keppist um að vera með þykkustu bók ársins fulla af ýmsum lýsingum á nærumhverfinu eða óþarfa masi sem dregst á langinn og síðan gerist ekkert nema síðasta fjórðung bókanna.

Er einhver bók/bækur sem þú getur ekki beðið eftir að lesa?

Ég á mér alltaf mína uppáhalds höfunda sem ég gríp í að lesa um leið og bækur þeirra eru komnar út, oftast les ég þær áður en það er búið að þýða þær yfir á íslensku. Um leið og ég sé að það er komin út bók eftir þá höfunda þá fer ég á stúfana að finna út hvar ég geti fundið þá bók og háma hana í mig.

Áttu þér uppáhaldsbók/bækur sem þú jafnvel lest aftur og aftur?

Ég er ekki mikið í að lesa sömu bækur aftur sökum þess að það er svo mikið af bókum sem ég mig langar að lesa. Það eru þó nokkrar bækur sem ég á og held mikið upp á en ég á allt Önnu í Grænuhlíð safnið eftir Lucy Maud Montgomery. Ég hef nokkrum sinnum lesið þær og í fyrra las ég líka íslensku þýðinguna sem bókaforlagið Ástríki gaf út.

Sumarlandið eftir Guðmund Kristjánsson hef ég lesið margoft og einhverra hluta vegna á ég tvö eintök af þeirri bók. Ég á líka bókina Pygmalion eftir Bernard Shaw og held ég mikið upp á hana.

En bókin sem ég fletti oftast og hef lesið mörgum sinnum er ljóðabókin Við brimsins gný eftir afa minn Kristján Arinbjörn Hjartarson. Ljóðið Mín bernskuár á Skagaströnd er eitt það fallegasta sem afi minn orti. Einnig á ég nánast allar ljóðabækurnar eftir föðurbróðir minn Rúnar Kristjánsson, þessar bækur og ljóðabókin hans afa eru mér dýrmætastar.

Áttu þér uppáhalds höfund/a?

Ójá þeir eru þónokkrir. Marga skandinavíska og breska glæpahöfunda held ég upp á.

Af íslenskum höfundum hefur Yrsa aldrei komið með feilbók að mínu mati.  Eva Björg Ægisdóttir kemur þar strax á eftir henni. Stefán Máni. Ég er farin að fylgjast með Margréti Höskuldsdóttur. Steindór Ívarsson er frábær penni, ég les allt eftir hann, þær eru svo fallegar og hugljúfar bækurnar hans og glæpaserían líka góð.

Emil Hjörvar Petersen, Víghóla serían hans var ótrúlega skemmtileg.

Bragi Páll Sigurðarson komst á kortið mitt þegar ég las bókina Kjöt, skemmtilega skrifuð og sprenghlægileg, leitt að það kom engin bók eftir hann árið 2025.

Fritz Már Jörgensen, það hefur ekki komin bók eftir hann lengi en hann má alveg setjast niður og halda áfram að skrifa mér fannst bækurnar hans ótrúlega spennandi og skemmtilegar. Ragnheiður nafna mín Jónsdóttir er komin á radarinn minn.

Besti nýliðinn er Guðni Reynir Þorbjörnsson með Þriðja augað ég kem til með að fylgjast með honum.

Hvaða bók/bækur hafa haft mest áhrif á þig og hvers vegna?

Það eru bækurnar þrjár eftir Dave Pelzer: Hann var kallaður þetta, Umkomulausi drengurinn og Maður að nafni Dave.

Ég minni mig oft á að fyrst að þessi maður komst yfir sínar raunir úr barnæsku og stóð eftir uppréttur og gerði góða hluti við líf sitt, að þá get ég það líka.

Hvaða bók/bækur ættu allir að lesa (bók/bækur sem þú mælir alltaf með)?

Leitin að tilgangi lífsins eftir Victor E. Frankl.

Ef þú fílar ævintýra fantasíu þá mæli ég 100% með bókinni Alchemised eftir SenLinYu, alveg hreint frábær bók.

Hér kemur topplistinn frá mér fyrir lesnar bækur árið 2025:

Topp þrjú:

  1. Alchemised – SenLin Yu.
  2. Kóngurinn af Osi – Jo Nesbø.
  3. Allar litlu lygarnar – Eva Björg Ægisdóttir og Lokar augum bláum – Margét S. Höskuldsdóttir

Seríur.

  1. Crescent City – Sarah J. Maas.
  2. Inga Svartdal – Toril Thorup.
  3. Empyrean – Rebecca Yarros (serían er ekki búin).

Til gamans má geta þess að Sandra heldur vel utan um allan bókalestur sinn og skráir hann Goodreads appinu, reading journal í GoodNotes í ipadinum sínum og í Dot Journaling bók. Í fyrra eignaðist hún 3d prentara og prentaði út bókahillu og útbjó litlar bókakápur á vefsíðunni Canvas yfir uppáhaldsbækur sínar á árinu.

Fyrir árið 2026 er hún búin að prenta með 3d prentaranum bókahillu, stigahillu, bók, setningu og markmiðahillu og síðan fara lesnar bækur ársins í hilluna.

Mynd: Aðsend.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mate flytur sig um set

Mate flytur sig um set
Fókus
Fyrir 5 dögum

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi