fbpx
Mánudagur 09.febrúar 2026
Fókus

Heiðra afmælisbarn með nýrri ábreiðu á In The Air Tonight

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 30. janúar 2026 15:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hr. Eydís heiðrar 75 ára afmæli Phil Collins með nýrri ábreiðu á In The Air Tonight

Í dag fagnar einn áhrifamesti tónlistarmaður níunda áratugarins, Phil Collins, 75 ára afmæli. Af því tilefni gefur Hr. Eydís út nýja ábreiðu á YouTube af einu þekktasta lagi hans, In The Air Tonight.

Lagið kom út í janúar árið 1981 og markaði upphaf sólóferils Collins eftir árin með Genesis. Þrátt fyrir að lagið hafi upphaflega verið talið of „einfalt“ af hljómsveitarfélögum hans, varð það eitt af stærstu og áhrifamestu lögum ´80s tímabilsins. Collins hefur sjálfur lýst textanum sem tilfinningalegum spuna, saminn á erfiðum tíma í lífi hans í kjölfar skilnaðar. Útkoman varð lag sem sló rækilega í gegn, fór á topp vinsældarlista víða um heim og festi Collins endanlega í sessi sem einn stærsta listamann sinnar kynslóðar.

„Maður getur ekki annað en lofttrommað trommubreikið þegar það kemur og vá hvað lagið er enn gott eftir 45 ár!“ segir Örlygur Smári, söngvari og gítarleikari Hr. Eydís.

Í dag, 45 árum síðar, lifir In The Air Tonight enn góðu lífi og er reglulega notað í kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og auglýsingum og trommubreikið fræga er orðið eitt þekktasta trommubreik poppsögunnar.

Hr. Eydís heiðrar 75 ára afmæli Phil Collins með þessari ábreiðu, áður en hljómsveitin gefur út nýtt frumsamið lag, MANIAC FOR LOVE, eftir viku.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 5 dögum

Ákveðin tegund fíknar virðist vera á uppleið – Svipuð dópamínáhrif og af kókaíni

Ákveðin tegund fíknar virðist vera á uppleið – Svipuð dópamínáhrif og af kókaíni
Fókus
Fyrir 5 dögum

Fyrrverandi keppandi í The Voice lést eftir sviplegt atvik á heimili sínu

Fyrrverandi keppandi í The Voice lést eftir sviplegt atvik á heimili sínu
Fókus
Fyrir 6 dögum

Gefur kærastanum aðvörun eftir að hann feðraði fjögur börn á einu ári

Gefur kærastanum aðvörun eftir að hann feðraði fjögur börn á einu ári
Fókus
Fyrir 6 dögum

58 ára en allir halda að hann sé miklu yngri: Engar lýtaaðgerðir, ekkert bótox – Þetta er leyndarmálið

58 ára en allir halda að hann sé miklu yngri: Engar lýtaaðgerðir, ekkert bótox – Þetta er leyndarmálið
Fókus
Fyrir 1 viku

Segir að Bandaríkin séu of hættulegur staður til að ferðast þangað

Segir að Bandaríkin séu of hættulegur staður til að ferðast þangað
Fókus
Fyrir 1 viku

Kvikmyndastjarna frá tíunda áratugnum nær óþekkjanleg

Kvikmyndastjarna frá tíunda áratugnum nær óþekkjanleg