fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Svakalegt þungarokkskvöld fram undan – Rífandi stemning og ekkert aldurstakmark

Fókus
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 09:22

Hljómsveitin Patronian.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þungarokkskvöld í Hellinum 19. febrúar – Patronian, Duft, Ultra Magnus og Bergmenn.

Þungarokksunnendur á suðvesturhorninu eiga von á góðu er þeir fá loks að berja Patronian augum í Hellinum í TÞM fimmtudaginn 19. febrúar. Patronian til halds og trausts stíga einnig þrjár öflugar rokksveitir á svið: Duft, Ultra Magnus og Bergmenn.

Patronian

Patronian er dauðarokksveit sem varð til árið 2021 þegar gítarleikarinn og söngvarinn Smári Tarfur leitaði aftur í þungarokksræturnar eftir víðfeðmt ferðalag um ólíka tónlistarstíla. Fyrsta plata sveitarinnar, Stabbed with Steel, kom út haustið 2022 og vakti töluverða athygli. Platan var meðal annars valin ein af tíu bestu plötum ársins hjá Scars & Guitars og sveitin hlaut lof fyrir beittar lagasmíðar og öfluga spilamennsku. Patronian kemur ekki oft fram á tónleikum og því er hér einstakt tækifæri til að sjá sveitina á tónleikum.

Duft

Duft er níðþung harðkjarna- og öfgarokksveit sem hefur verið á miklu flugi síðan þeir gáfu út sína fyrstu plötu vorið 2024. Frumraunin Altar of Instant Gratification er full af hálsbrjótandi slögurum og málar grimmur hljóðheimurinn dökka mynd af veröld sem mannkynið stefnir til glötunnar.

Ultra Magnus

Ultra Magnus eru þriggja manna stoner/sludge metal sveit frá Reykjavík, stofnuð árið 2021. Hljóðheimur sveitarinnar er innblásinn af köldu, slöppu og vindasömu veðurfari – þung tónlist, spiluð hátt og af mikilli einurð.

Jafnframt stíga á stokk Bergmenn, tríó ungra tónlistarmanna úr Grundarfirði sem deila mikilli ástríðu fyrir rokktónlist.

Smelltu hér til að skoða viðburðinn á Facebook.

Tónleikarnir fara fram í Hellinum TÞM, Hólmaslóð 2 fimmtudaginn 19. febrúar.

Miðasala hér. Húsið opnar klukkan 18. Fyrsta hljómsveit á svið klukkan 19. Miðaverð er 2.990,-

Ekkert aldurstarkmark.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 3 dögum

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“