

Verslunarhúsnæði á jarðhæð Ásvallagata 19 er komið á sölu, en í húsnæðinu er verslunin Kjötborg, ein þekktasta hverfisverslun höfuðborgarinnar og þó víðar væri leitað.
Bræðurnir Gunnar og Kristján Jónssynir eru eigendur Kjötborgar og hafa staðið vaktina frá árinu 1981 í verslun sinni á horni Ásvallagötu og Blómvallagötu.
Húsið er byggt árið 1938 og er jarðhæðin 88 fm. Óskráður kjallari er undir hluta húsnæðisins sirka 40 fm og ekki með fullri lofthæð. Húsnæðið er að mestu einn salur með snyrtingu og starfsmannaaðstöðu baka til.
Ásett verð er 55 milljónir króna
Í auglýsingu kemur fram að húsnæðið gæti hentað fyrir margskonar starfsemi. Tilvalið til að breyta í íbúð eins og segir.
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.