fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Fókus

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 5. mars 2026 15:30

Fjöruverðlaunin 2026 Verðlaunahafar að lokinni athöfn í Höfða. Frá vinstri í neðri röð: Auður Aðalsteinsdóttir, Brynhildur Þórarinsdóttir og Maó Alheimsdóttir. Í efri röð frá vinstri Sólveig og Drífa Thoroddsen sem tóku við verðlaununum fyrir hönd móður sinnar Kristínar Guðrúnar Jónsdóttur, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Elísabet Gunnarsdóttir. Mynd: Hulda Gunnarsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna og kvára, voru afhent við hátíðlega athöfn í Höfða í dag, fimmtudaginn 5. mars. Verðlaunin hlutu:

Í flokki fagurbókmennta:

Hvalbak eftir Maó Alheimsdóttur

Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis:

Drífa Viðar eftir Kristínu Guðrúnu Jónsdóttur, Elísabetu Gunnarsdóttur og Auði Aðalsteinsdóttur

Í flokki barna- og unglingabókmennta:

Silfurgengið eftir Brynhildi Þórarinsdóttur

Þetta er í tuttugusta sinn sem Fjöruverðlaunin eru veitt og í ellefta sinn síðan borgarstjóri Reykjavíkur, bókmenntaborgar UNESCO, gerðist verndari verðlaunanna og bauð Heiða Björg Hilmisdóttir gesti velkomna. Verðlaunahafar fengu verðlaunagripi gerða af listakonunni Koggu.

Rökstuðningur dómnefnda

Hvalbak eftir Maó Alheimsdóttur

Hvalbak eftir Maó Alheimsdóttur er ljóðrænn óður til lands og tungu. Ljóðin hverfast um tengsl ljóðmælanda við náttúruna og þá einkum jökulinn sem býr í senn yfir fegurð og hrikaleika. Dregnar eru upp áhrifaríkar myndir af síbreytilegu landslagi þar sem jökullinn þarf sífellt að hopa og eftir sitja sorfnar klappir, hvalbök. Þá einkennir óvænt orðanotkun ljóðin þar sem fræðilegum íðorðum er fléttað saman við ljóðræna orðkynngi á afar ferskan hátt. Þetta er listilega gert.

Drífa Viðar eftir Kristínu Guðrúnu Jónsdóttur, Elísabet Gunnarsdóttur og Auði Aðalsteinsdóttur

Heimurinn er stór starfandi heili. Við erum höndin í þessum heila og vinnum það sem heilinn sýnir okkur“ skrifaði listakonan fjölhæfa, Drífa Viðar um mennskuna og skáldskapinn í bréfi frá París 1947. Saga Drífu og verk hennar á sviðum myndlistar og skáldskapar, heimspeki og samfélagsbaráttu eru loks aðgengileg í einstaklega fallegu og vönduðu verki. Bókin er rík af heimildum, bréfaskriftum og samtímarýni sem veitir innsýn í það samfélag sem Drífa Viðar tók þátt í að móta og það erindi sem verk hennar eiga enn í dag.

Silfurgengið eftir Brynhildi Þórarinsdóttur

Því fylgir ólga að vera fimmtán ára og í Silfurgenginu dregur Brynhildur Þórarinsdóttir upp hjartnæma mynd af táningnum Sirrylei. Hún tekst á við stóru málin í lífinu: partýhald, stráka- og vinkvennamál ásamt því að leggjast yfir ættfræði með nördunum. Kveikjan að því er nælan sem amma gaf henni í afmælisgjöf og segir sögu þriggja kynslóða Sigríða. Silfurgengið er einlæg og spennandi saga sem sýnir lesandanum það sem hefur breyst og það sem er alltaf eins.

Í dómnefndum sátu:

Fagurbókmenntir:

  • Jóna Guðbjörg Torfadóttir, framhaldsskólakennari
  • Sigrún Birna Björnsdóttir, framhaldsskólakennari
  • Unnur Steina Knarran Karls, bókmenntafræðingur

Fræðibækur og rit almenns eðlis:

  • Brynja Helgu Baldursdóttir, íslenskufræðingur
  • Hulda Steingrímsdóttir, umhverfisfræðingur
  • Sólveig Ásta Sigurðardóttir, nýdoktor í bókmenntafræði

Barna- og unglingabókmenntir:

  • Helga Birgisdóttir, lektor í íslensku
  • Júlía Margrét Sveinsdóttir, bókmenntafræðingur
  • Sunna Skúladóttir, íslenskufræðingur
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Afhjúpar dónalegustu stjörnurnar sem hún hefur unnið með

Afhjúpar dónalegustu stjörnurnar sem hún hefur unnið með
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Manstu þegar maður gat klárað Facebook? þú áttir bara 3 Facebook metra ólesna“

„Manstu þegar maður gat klárað Facebook? þú áttir bara 3 Facebook metra ólesna“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Íslensku lögin sem Laufey segir að allir verði að hlusta á

Íslensku lögin sem Laufey segir að allir verði að hlusta á
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þetta verður fyrsti viðburður Þjóðaróperunnar

Þetta verður fyrsti viðburður Þjóðaróperunnar
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þetta er nýja 20 milljarða króna höllin hans Mark Zuckerberg

Þetta er nýja 20 milljarða króna höllin hans Mark Zuckerberg
Fókus
Fyrir 5 dögum

Stórstjarnan segist nú fullfær um krufningar

Stórstjarnan segist nú fullfær um krufningar
Fókus
Fyrir 6 dögum

Íslandsvinur höfðar mál gegn bæ í örvæntingarfullri tilraun til að bjarga mannorðinu

Íslandsvinur höfðar mál gegn bæ í örvæntingarfullri tilraun til að bjarga mannorðinu
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Ég held að það sé líka bara gott fyrir sálina að tala um þetta“

„Ég held að það sé líka bara gott fyrir sálina að tala um þetta“