fbpx
Mánudagur 13.apríl 2026
Fréttir

Helmingur ungra bandarískra ferðamanna ljúga um þjóðerni sitt – Hundsa fyrirmæli og valda vandræðum á Íslandi

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 9. mars 2026 10:30

Ef þú hittir ferðamenn sem segist vera frá Kanada.....þá er hann kannski að ljúga.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný könnun sýnir að nærri helmingur ungra bandarískra ferðamanna hefur logið til um þjóðerni sitt. Önnur könnun, sem gerð var á Íslandi, sýnir að bandarískir ferðamenn eru líklegir til þess að hundsa öryggistilmæli og til að valda vandamálum á ferðum sínum.

Könnun sem gerð var fyrir fraktfyrirtækið Send My Bag í febrúar á þessu ári sýnir að 44 prósent bandarískra ferðamanna, á aldrinum 18 til 45 ára, hafa logið til um þjóðerni sitt. 28 prósent gera það af og til en 16 prósent reglulega.

Óttast andúð

Ekki kemur fram í könnuninni hvaðan þeir þykjast vera en ætla má að margir þykist vera frá Kanada sökum hreimsins.

„Það er ekki sjaldgæft að skrökva smá til þess að komast hjá vandræðalegum samtölum. Það sem við erum að sjá gerast hjá ungum Bandaríkjamönnum er að þeir vilja einbeita sér að ferðalaginu í stað þess að vera spurðir um skoðun þeirra á stjórnmálunum,“ segir Adam Ewart, forstjóri Send My Bag við miðilinn USA Today. „Flestir Bandaríkjamenn fara til Evrópu. Þeir fara til þess að njóta matar, menningar og sögu, ekki til þess að svara spurningum um hvort Grænland verði innlimað.“

Þá óttast margir þeirra að verða fyrir andúð á ferðalögum sínum. En vegna hegðunar Donald Trump forseta og Bandaríkjastjórnar þá hefur andúð á Bandaríkjamönnum vaxið gríðarlega í þeim löndum sem Bandaríkjamenn heimsækja mest, það er í Evrópu, Kanada og Mexíkó.

Sjá einnig:

Bandarískir ferðamenn sagðir sýna ótrúlegan dónaskap á Íslandi – „Hún sló í myndavélina mína með göngustafnum“

„Til þess að komast hjá spennu og bægja frá hugsanlegum átökum þá velja Bandaríkjamenn stundum þann kost að þykjast vera af öðru þjóðerni,“ segir Ewart.

Hávaðasamir og tillitslausir

Þá snýst málið ekki aðeins um stjórnmál. Bandarískir ferðamenn hafa lengi haft það orðspor á sér að vera hávaðasamir, tillitslausir og pirrandi fyrir heimamenn. Eitthvað virðist vera til í þessu samkvæmt nýrri könnun sem Gallup á Íslandi lét gera í desember og janúar síðastliðnum hjá íslensku starfsfólki í ferðaþjónustu.

Könnunin sýnir að bandarískir ferðamenn eru næst líklegastir til þess að hundsa viðvaranir og tilmæli, til að mynda hvað varðar vernd umhverfis. Þá eru þeir einnig næst líklegastir til þess að valda erfiðleikum fyrir ferðaþjónustustarfsfólk, svo sem með því að valda töfum eða að kvarta.

Stór hópur

Vitnað er í Ingólf Shahin, forstjóra Guide to Iceland, sem segir að vegna enskunnar sé auðvelt að eiga samskipti við Bandaríkjamenn en hópurinn sé stór og með fjölbreyttar ferðavenjur.

„Góður ferðamaður er forvitinn, viðbúinn og tillitssamur. Þeir fylgja reglum á staðnum, sína umhverfinu virðingu sem og samfélaginu sem þeir heimsækja, og taka sér tíma til að læra um staðinn,“ segir Ingólfur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Myndband oddvita Miðflokksins vekur hörð viðbrögð – „Ertu í alvöru að aka í göngugötu og kvarta yfir skort á bílastæðum?“

Myndband oddvita Miðflokksins vekur hörð viðbrögð – „Ertu í alvöru að aka í göngugötu og kvarta yfir skort á bílastæðum?“
Fréttir
Í gær

Þykir of vænt um bæinn sinn til að þegja – „Útsvarsgreiðendur í Kópavogi borguðu fyrir hús sem þeir áttu fyrir“

Þykir of vænt um bæinn sinn til að þegja – „Útsvarsgreiðendur í Kópavogi borguðu fyrir hús sem þeir áttu fyrir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Árni Stefán skrifar: MAST gegn MÉR – um lögleysu aðgerða MAST

Árni Stefán skrifar: MAST gegn MÉR – um lögleysu aðgerða MAST
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Faðir á Norðurlandi úrskurðaður í nálgunarbann – Dóttirin tilkynnti um ofbeldi hans til lögreglu

Faðir á Norðurlandi úrskurðaður í nálgunarbann – Dóttirin tilkynnti um ofbeldi hans til lögreglu