fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fókus

Bíó Paradís á meðal þeirra bestu á lista Time Out – Draumastaður bíóunnandans

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 4. mars 2026 15:00

Mynd: Facebook/Bíó Paradís.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Menningarkvikmyndahúsið Bíó Paradís á Hverfisgötu í Reykjavík er á lista Time Out, yfir 100 bestu kvikmyndahús í heimii.

Í umsögninni segir meðal annars:

Hér er um að ræða draumastað kvikmyndaunnandans … sjálfseignarrekið kvikmyndahús með þremur sölum, staðsett aðeins nokkrum húsaröðum frá sjónum, eina listræna kvikmyndahús landsins …  Bíó Paradís leggur áherslu á að sýna verk íslenskra kvikmyndagerðarmanna samhliða fjölbreyttu úrvali alþjóðlegra kvikmynda, heimildarmynda og stuttmynda.

En staðurinn er meira en bara kvikmyndahús. Þar má setjast niður á notalegu kaffihúsi eða bar, eða slaka á í galleríi prýddu klassískum kvikmyndaplakötum, þar sem andrúmsloftið er afslappað og kvikmyndaáhuginn í fyrirrúmi.  Fyrir þá sem leita að kvikmyndaupplifun utan hins hefðbundna er Bíó Paradís sannkallaður griðastaður.

Regnboginn kokteilbar: Ljósmyndari: Patrik Ontkovic.

Á listanum má finna mörg af frægustu og mest heillandi bíóhúsum heims, til dæmis Pathé Tuschinski í Amsterdam, sem er þekkt fyrir stórbrotna Art Deco-arkitektúr, TCL Chinese Theatre í Hollywood, þar sem margar af stærstu frumsýningum kvikmyndasögunnar hafa farið fram og Le Grand Rex í París, eitt glæsilegasta kvikmyndahús Evrópu.

Regnboginn kokteilbar: Ljósmyndari: Patrik Ontkovic.
Stýrurnar í Bíó Paradís: Ása Baldursdóttir dagskrárstjóri og Hrönn Sveinsdóttir framkvæmdastjóri.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslandsvinurinn Grohl fer til sálfræðings sex sinnum í viku eftir framhjáhaldið – „Ég þurfti að slökkva á öllu“

Íslandsvinurinn Grohl fer til sálfræðings sex sinnum í viku eftir framhjáhaldið – „Ég þurfti að slökkva á öllu“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leyndarmálið úr æsku Steinunnar Ólínu verður enn myrkara – „Ég vildi komast lifandi heim tíl mín“

Leyndarmálið úr æsku Steinunnar Ólínu verður enn myrkara – „Ég vildi komast lifandi heim tíl mín“
Fókus
Fyrir 1 viku

Ertu að fara gifta þig? Þá skaltu ekki horfa á þessa nýju seríu á Netflix

Ertu að fara gifta þig? Þá skaltu ekki horfa á þessa nýju seríu á Netflix
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó aflýsir tónleikum: „Komið var í veg fyrir það að þessu sinni“

Ingó aflýsir tónleikum: „Komið var í veg fyrir það að þessu sinni“