fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fókus

Ein þekktasta söngkona West End mætir í Hörpu

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 6. mars 2026 09:21

Kerry Ellis

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tvö af stærstu söngleikjanöfnum West End eru á leið til Íslands og munu koma saman fram á sýningunni Broadway Party sem verður haldin í Hörpu þann 1. maí næstkomandi.

Kerry Ellis er ein þekktasta söngkona West End og mun hún koma fram með vinsælasta tónlistarleikhópi Bretlands um þessar mundir, The Barricade Boys, sem koma hingað til lands beint úr uppseldri tónleikaferð um Bretland og Bandaríkin. Ellis hefur unnið til verðlauna fyrir hlutverk sitt sem Elphaba i hinum þekkta söngleik Wicked á West End og Broadway. Hún var fyrsta breska Elphaba og fyrsta leikkonan sem fer frá West End til Broadway fyrir hlutverkið.

Ellis hefur verið í aðalhlutverkinu í fjölda annarra söngleikja eins og Cats, Oliver, Miss Saigon, We Will Rock You og Les Misérables. Hún hefur unnið í mörg ár með Brian May, gítarleikara Queen, og saman hafa þau farið í fjölda tónleikaferðalaga um Bretland og meginland Evrópu. May lýsir Kerry sem ,,fegurstu rödd Bretlands.“

Söngsveitin The Barricade Boys samanstendur af fjórum ungum og glæsilegum söngvurum sem allir hafa komið fram aðalhlutverkum í söngleiknum Les Misérables. Þeir hafa notið mikilla vinsælda víða um heim þar á meðal á Broadway og West End þar sem þeir hafa sett þeirra einstaka brag á fræga söngleiki og klassísk lög. Saman munu þessir öflugu flytjendur búa til magnaða kvöldskemmtun. Frá tilfinningaþrunga Les Misérables til upplífgandi samhljómsins í Jersey Boys og hækkandi kraftsins í Wicked munu The Barricade Boys og Ellis taka áhorfendur með í mikið tónlistarferðalag. Þegar við bætast fræg lög úr West Side story, The Greatest Showman, Cats, Oliver, Mamma Mia og The Wizard of Oz, auk margra af bestu popp- og rokk- og Motown lögum allra tíma þá er komið fullkomið Broadway partý.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Glímir við heilaæxli á meðan sonurinn jafnar sig eftir erfiða aðgerð og eiginmaðurinn heyir kosningabaráttu – „Njótið lífsins og verið þakklát fyrir það sem að þið eigið“

Glímir við heilaæxli á meðan sonurinn jafnar sig eftir erfiða aðgerð og eiginmaðurinn heyir kosningabaráttu – „Njótið lífsins og verið þakklát fyrir það sem að þið eigið“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Baltasar Kormákur tryggir sér annað stórverkefni með Charlize Theron

Baltasar Kormákur tryggir sér annað stórverkefni með Charlize Theron
Fókus
Fyrir 4 dögum

Prjónaðu besta vin Línu langsokks

Prjónaðu besta vin Línu langsokks
Fókus
Fyrir 4 dögum

Dóra stígur fram: „Ég hefði ekki getað gert neitt til að koma í veg fyrir það sem gerðist“

Dóra stígur fram: „Ég hefði ekki getað gert neitt til að koma í veg fyrir það sem gerðist“
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir konunni minni“

„Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir konunni minni“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Mótmælendur segjast hafa falið flöskur með gervipissi á Met Gala

Mótmælendur segjast hafa falið flöskur með gervipissi á Met Gala