fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fókus

Þetta er barnaefnið sem olli Íslendingum martröðum

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 7. mars 2026 16:00

Barnaefni eða hryllingsmyndir?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barnaefni er yfirleitt framleitt til þess að hafa ofan af fyrir börnum, skemmta þeim og fræða. Stundum gerist það þó óvart að barnaefni beinlínis skelfir börn. Svo mikið að persónur eða atriði geta setið í minninu áratugum saman og valdið martröðum.

Á samfélagsmiðlinum Reddit fóru fram umræður um einmitt þetta. Hérna er barnaefnið sem hefur valdið Íslendingum martröðum.

 

Pétur og úlfurinn – Útvarpsleikrit og teiknimynd með tónlist eftir Sergei Prokofiev

„Fyrir mig var það alltaf úlfurinn í Pétur og Úlfurinn. Man ég var sirka 3ja og hlustandi á Örn Árnason útgáfuna, hljóp alltaf úr herberginu þegar úlfurinn kom.“

Nemó í undralandi – Japönsk teiknimynd

„Reyndi að horfa á hana aftur fyrir svona 10 árum. Gat ekki klárað því mér leið svo illa.“

„Sótthitamartröð á spólu.“

Benjamín dúfa – Kvikmynd byggð á barnabók Friðriks Erlingssonar

„Ég las bókina fyrst, þannig að ég vissi við hverju var að búast.“

Fuglastríðið í Lumbruskógi – Dönsk teiknimynd

„“Hroði er að koma!“ -Ég, í hvert skipti sem að hópur af fuglum drífur sig í burt.“

„Dúfan maður, Dúfan sjokkeraði mig.“

Prinsessan og durtarnir – Ungversk teiknimynd

„Er þrítugur og hef ekki enn þá þorað að horfa aftur á þessi skrímsli.“

„Ég man bara eftir að vera heima hjá ömmu, ég var svona 4 ára og ég hljóp út öskurgrátandi. Man ekki neitt eftir myndinni sjálfri.“

Sagan endalausa – Vestur þýsk kvikmynd

„Man enn eftir martröðunum sem helvítis úlfurinn úr Neverending Story olli mér.“

„Þetta með hestinn var samt verra.“

Múmínálfarnir – Teiknimyndir byggðar á finnskum bókum eftir Tove Jansson

„Morrrinn, hattífattarnir og töframaðurinn. Það var nóg af martraðaeldsneyti í múmínálfunum.“

„Múmínàlfarnir fokkuðu mér upp.“

Karíus og Baktus – Norsk stuttmynd byggð á leikriti Thjorbjörn Egner

„Fæ gæsahúð ef ég heyri upphafsstefið enn í dag.“

„Þetta var allt viljandi gert og virkaði á börnin.“

Þytur í laufi – Þættir og kvikmyndir byggðar á bókum hins breska Kenneth Grahame

„Mér fannst Wind in the Willows alltaf frekar óþægilegt, creepy stuff.“

Brúðubíllinn – Brúðuleikhús Helgu Steffensen

„Vinn á leikskóla og brúðubíllinn kom um daginn og ég var með ógeðishroll allan tíman, komu einhvern tíman á róló fyrir 30 árum og ég hef ekki beðið bætur síðan þá.“

Ronja Ræningjadóttir – Sænsk kvikmynd byggð á bók Astrid Lindgren

„NÚ SKAL ÉG SÆKJA SYSTUR MÍNAR!“

Litla lirfan ljóta – Íslensk teiknimynd

„Viðbjóðslegt myndefni. Ætti að vera bannað.“

„Af einhverri ástæðu er ég alltaf að sjá klippur af orminum í myndinni hvísla Á rússnesku á insta reels.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Fékk áfall þegar hún kíkti í síma eiginmannsins – Það var bara upphafið að martröðinni

Fékk áfall þegar hún kíkti í síma eiginmannsins – Það var bara upphafið að martröðinni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fréttin sem Jóhann Hlíðar neitar að skrifa

Fréttin sem Jóhann Hlíðar neitar að skrifa
Fókus
Fyrir 6 dögum

Kynlífsstellingar til að prófa um páskana – Páskakanínan og danglaðu gulrótinni

Kynlífsstellingar til að prófa um páskana – Páskakanínan og danglaðu gulrótinni
Fókus
Fyrir 1 viku

Ertu að fara gifta þig? Þá skaltu ekki horfa á þessa nýju seríu á Netflix

Ertu að fara gifta þig? Þá skaltu ekki horfa á þessa nýju seríu á Netflix