fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fókus

Sir Elton birti sjaldséða fjölskyldumynd – Synirnir orðnir táningar

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 4. mars 2026 08:07

Elton John

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Synir tónlistarmannsins Elton John og David Furnish stilltu sér upp með feðrum sínum stuttu fyrir jól í bókaherbergi heimilisins.

Zachary, 15 ára, og Elijah, 13 ára, völdu einfaldan stíl, svarta stuttermaboli og gallabuxur.   John, 78 ára, klæddist dökkfjólubláum jakkafötum og íþróttaskóm og  Furnish, 63 ára, var í grænum jakkafötum og ljósblárri skyrtu. Heimilishundarnir Joseph og Jacob voru með á myndinni.

Myndin var tekin þremur dögum fyrir jól af ljósmyndaranum Catherine Opie og verður myndin til sýnis í Þjóðlistargalleríinu (National Portrait Gallery) í London.

„Það er mikill heiður að Catherine Opie ljósmyndi fjölskyldu okkar og að hún sé til sýnis í Þjóðlistargalleríinu. Við erum miklir aðdáendur verka hennar og stoltir af því að hafa fallegar og hjartnæmar myndir hennar í safni okkar.“

Opie var einnig himinlifandi yfir upplifuninni og sagði við Telegraph að það hefði verið „sannkallaður heiður“ að vinna með fjölskyldunni og bætti við: „Fyrir mér táknar þetta mannúðina í því sem fjölskylda getur verið.“

Að auki sendi Victoria Siddall, forstöðumaður Þjóðlistargallerísins, frá sér yfirlýsingu.

„Þetta fagnar ekki aðeins einstökum árangri Sir Elton John í tónlist heldur einnig mikilvægu mannúðarstarfi og góðgerðarstarfi sem hann og David hafa unnið að á undanförnum áratugum og fjölskyldunni sem þau hafa byggt upp saman,“ útskýrði hún.

John og Furnish kynntust upphaflega í gegnum sameiginlega vini árið 1993 og gengu í borgaralegt hjónaband árið 2005 og giftust formlega 21. desember 2014.

John hefur sagt föðurhlutverkið það besta í lífi sínu og árið 2019 sagðist hann reyna að yfirgefa sviðspersónuna sína þegar hann væri heima með sonum sínum.

„Þeir vita hvað pabbi gerir, en ég tek Elton aldrei með mér heim. Ég reyni að skilja Elton eftir á sviðinu,“ sagði John„Þeir vita að pabbi er frægur en … þeir eru frekar jarðbundnir, hvað það varðar. Þeir elska tónlist pabba síns, en þeim líkar líka mikið af tónlist annarra.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi
Fókus
Fyrir 3 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd
Fókus
Fyrir 1 viku

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist
Fókus
Fyrir 1 viku

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu