fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Fyrirsætan fékk ekki líftryggingu því hún er of þung

Fókus
Föstudaginn 27. febrúar 2026 19:30

Tess Holliday. Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríska fyrirsætan Tess Holliday segir að henni hafi verið neitað um líftryggingu vegna þyngdar sinnar og gagnrýnir hún það sem hún kallar kerfisbundna fordóma innan bandaríska trygginga- og heilbrigðiskerfisins.

Tess, sem er ein þekktasta fyrirsæta heims í yfirstærð, greindi frá málinu í myndbandi á TikTok þar sem hún lýsti yfir vonbrigðum með ákvörðun tryggingafélagsins AAA.

Í myndbandinu sagði Tess kaldhæðnislega: „Fyrirgefðu. Já, ég hélt að ég gæti fengið líftryggingu sem 40 ára manneskja sem reykir ekki, drekkur ekki og er ekki með heilsufarsvandamál. Það voru mín mistök.“

Hún bætti við að sú staðreynd að hún er 160 sentímetrar á hæð og 135 kíló geri það að verkum að hún er talin óhæf til að fá líftryggingu.

Tess er afar óhress með þetta og bendir á að hún hreyfi sig daglega, sé ekki með neina undirliggjandi sjúkdóma og taki engin lyf. Segir hún að bandaríski heilbrigðis- og tryggingaiðnaðurinn sé haldinn fitufordómum og kerfið sé gallað.

Tess Holliday. Mynd/Getty
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað